152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:22]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég get ekki svarað því sem hv. þingmaður spyr hér um með öðrum hætti en þeim að vísa til stjórnarsáttmálans sem nýlega hefur verið kynntur. Það má ekki lesa út úr þeim stjórnarsáttmála að dregið hafi úr mikilvægi þess að fást við loftslagsmál í huga þeirra sem fara með forystu í ríkisstjórninni og þeirra flokka sem hana mynda. Það sem var aftur á móti umdeilt í fjármálaáætlunarumræðunni í vor var hvort framlögin væru að minnka til lengri tíma. Já, það mátti setja það þannig fram en þá var líka ævinlega sleppt að nefna að þau hefðu risið mjög hratt og bratt og hefðu með eðlilegum hætti gefið eftir, einfaldlega vegna þeirrar hagspár og þeirra grunntalna sem liggja undir reikniverki fjármálaáætlunar til lengri tíma. Í sjálfu sér er þetta leiðinlega tæknileg umræða sem engu skilar, en baráttan við loftslagsvána er eitt af höfuðverkefnum þessarar ríkisstjórnar.