152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[17:57]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég kannast reyndar við þá nefnd sem var sett á laggirnar, enda kom það í kjölfarið á þingsályktunartillögu sem ég hafði forystu um að leggja fram og samþykkt var hér á Alþingi. Ég átti ekki við vaxtarsvæði yfir höfuð heldur það ástand sem skapast við mikið atvinnuleysi. Það bætist síðan við það sem hv. þingmaður nefnir hér, að fjölgunin verður mikil á Suðurnesjum og þjónustan sem ríkið kostar vex ekki í sama hlutfalli. Þannig var ástandið þegar heimsfaraldurinn skall á okkur með öllum þessum vanda. Ég hef því haft það á tilfinningunni sem íbúi á Suðurnesjum að ríkisstjórnin og stjórnvöld hafi ekki beint sjónum sínum nægilega að þessari stöðu. (Forseti hringir.) Það varðar félagsleg mál, það varðar heilbrigði og það varðar efnahag fyrirtækja en ekki síst efnahag heimilanna — en fólk hefur glímt við það að geta ekki fengið vinnu til að bæta stöðu sína.