152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:05]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég velti einmitt fyrir mér: Hvað stendur til að gera nú? Mun þessi ríkisstjórn festa það í sessi að við kjósum að hausti eftir þessa reynslu. Við lentum í þessu fádæma klúðri í Norðvesturkjördæmi. Þau taka sér níu vikur í að komast að þeirri niðurstöðu að ætla ekki að gera neitt í málinu og við sitjum eftir með sárt ennið og eigum að afgreiða fjárlög á örfáum vikum, þetta gríðarlega mikilvæga plagg.

Það er ástæða fyrir því að við kjósum að vori. Það er ástæða fyrir því að ráðherrar þurfa að hafa góðan tíma til þess að kynna sér sína málaflokka, að við höfum sumarið til að vinna áherslur nýrrar ríkisstjórnar þannig að fjárlögin séu tilbúin í upphafi haustannar þingsins svo að þingið, sem fer enn þá með fjárveitingavaldið, hafi rúman tíma til þess að fara í gegnum þau.

Ég spyr því hv. þingmann: Finnst honum ekki mikilvægt að ríkisstjórnin segi sem fyrst hvað hún ætlar að gera í þessum málum? Ætlar hún einfaldlega að gera þetta að venju, að við kjósum að hausti, alveg burt séð frá allri reynslu sem við höfum af því hvað sem það getur þýtt, eins og mistök í fjárlagagerð? Hvað sem það þýðir fyrir vinnu þingsins fyrir áramót? Mun sjálfhverfan og valdsæknin aftur ráða för hjá þessari ríkisstjórn að fjórum árum liðnum?