fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, eins og ég segi þá finnst mér þetta skrýtið. Ég held að það ætti að vera sameiginlegt markmið okkar að vinna að því á þessu kjörtímabili að það verði í hinn endann á þann veg að kosið verði að vori. Við ættum auðvitað að sameinast um að leggja áherslu á það við þá sem sitja hér í ríkisstjórn að þannig verði um hnútana búið að hægt verði að kjósa að vori. Þetta fyrirkomulag er vont og veldur okkur vandamálum. Það er flaustursgangur á þessu, að klára hluti rétt fyrir áramót á harðahlaupum. Þannig að til þess að hafa tíma til að vinna verkin eins og á að gera held ég að við ættum að leggja áherslu á að kjósa að vori.