152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:08]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Forseti. Það er frekar harður skóli að koma sem nýliði inn á þing akkúrat núna, og ég sé að það er líka upplifun hv. þingmanns sem þekkir hvernig hlutirnir geta verið öðruvísi. Á sveitarstjórnarstiginu tekst fólki að vinna allt öðruvísi saman en hér á þingi almennt og sérstaklega núna eftir þá ótrúlegu forherðingu í stjórnarliðinu sem átti sér stað í haust. Það stjórnarlið sem við mætum í dag er bara ótrúlegt þegar kemur að samstarfsvilja eða skorti á honum og því hvernig þau ætla að fá sitt í gegn, sama hvað, í krafti síns meiri hluta.

Það er líka mjög áhugavert sem þingmaðurinn velti upp um þann stífa ramma sem þingið er búið að setja sveitarfélögunum varðandi rútínustarfsemi eins og fjárlagagerðina sem við myndum aldrei setja okkur sjálfum. Við viljum geta kosið hvenær sem er og við viljum geta komið með fjárlög hvenær sem er. Við setjum það hins vegar í lög hvenær sveitarfélög geta verið með kosningar, hvenær þau eiga að koma með sína fjárlagapappíra.

Mig langaði ekki að dvelja mikið við þetta heldur velta upp einu stóru atriði, einum snertifleti á milli ríkis og sveitarfélaga sem var látinn ókláraður hér á þingi á síðasta kjörtímabili og það er bilið á milli leikskóla og fæðingarorlofs. Hér var ákveðið, loksins og reyndar í annað sinn, að lengja fæðingarorlofið upp í 12 mánuði. En í alvöru talað: Er einhver von að sveitarfélögin geti byggt brúna á móti eins og fjárhagsstaða þeirra er, eins og munur á tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga er settur upp í dag? (Forseti hringir.) Væri ekki full ástæða fyrir ríki og sveitarfélög að fara bara í sameiginlegt átak á þessum helmingi brúarinnar, nú þegar við erum búin að byggja helminginn fæðingarorlofsmegin?