fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir hans andsvar. Jú, sveitarfélög eru í verulegum erfiðleikum vegna mikilla útgjalda sem koma til vegna vistunar á leikskólum. Krafan verður æ þyngri á sveitarfélögin. Sveitarfélög eru í dag að borga um 80–90% af þeim kostnaði sem til fellur vegna leikskóla en foreldrar kannski 10–15%. Síðan er það orðin krafa að sveitarfélag veiti úrræði frá fæðingarorlofi þar til barn fer í grunnskóla. Það er ekkert óeðlileg krafa í sjálfu sér vegna þess að leikskóli er í raun skilgreindur sem fyrsta skólastig. Það er því ekkert óeðlilegt að íbúar geri þá kröfu til sveitarfélagsins síns að það taki við barni eftir að fæðingarorlofi lýkur. En það hefur aldrei farið fram umræða um það með hvaða hætti á að fjármagna það. Sú umræða hefur aldrei átt sér stað og það er í raun og veru ábyrgðarleysi af ríkisvaldinu. Við heyrum oft að sveitarfélögin eigi bara að gera þetta og þetta sé á gráu svæði og það er enginn sem ber ábyrgð á þessu. En það er vissulega þörf á að umræða fari fram um það með hvaða hætti á að sinna börnum frá því að fæðingarorlofi lýkur þar til þau komast í leikskólavistun.