152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:12]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður segir að íbúar geri þá kröfu á sveitarfélögin að brúa þetta bil á milli fæðingarorlofs og grunnskóla. Ég ætla að vera sammála og pínulítið ósammála líka vegna þess að ég held að íbúum sé slétt sama hver veitir þessa þjónustu. Foreldrar og fjölskyldur vilja bara að þessi þjónusta sé veitt og eiga heimtingu á því. Ég held að íbúum sveitarfélaga gæti ekki verið meira sama um það úr hvorum vasa hins opinbera kostnaðurinn er greiddur. Mér finnst kristallast í þessu máli vandinn sem er þetta eilífa reiptog á milli ríkis og sveitarfélaga varðandi hvaða þjónustu hver eigi að veita og hver eigi að borga fyrir hana og allt það. Hver það er sem ber á endanum kostnaðinn og þjónustuskerðinguna — það er bara almenningur, það er borgarinn, það eru börnin, það er fólkið sem fær ekki þjónustuna sem við erum öll sammála um að eigi að vera hægt að gera kröfu á hið opinbera um að sé veitt. Svo á hið opinbera að hafa þroska til að vinna úr því hver veitir hana (Forseti hringir.) án þess að vera alltaf að draga það einhvern veginn inn í almannarýmið.