fjárlög 2022.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, íbúum er alveg slétt sama en við verðum samt að átta okkur á því að skelin gagnvart íbúunum er sveitarfélagið. Þegar fólk rífst út af því að ekki sé næg þjónusta á heilsugæslunni er það að rífast við bæjarfulltrúana. Það er ekkert endilega að rífast við forsætisráðherra af því að þetta er nærþjónusta sem skiptir íbúana miklu. Það gengur á bæjarfulltrúana: Af hverju eruð þið ekki að veita þessa þjónustu? Það er rétt að þetta kemur úr sama vasanum en það eru skattar sem lagðir eru á íbúana til að hægt sé að veita tilgreinda þjónustu. Það skiptir okkur ekki máli og skiptir íbúana engu máli hvort ríkið borgar eða sveitarfélagið, en hvort sem við sitjum sveitarfélagamegin eða ríkisins megin verðum að ná um það samkomulagi hver eigi að borga hvað. Það samkomulag er ekki til staðar.