fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Enn og aftur ræðum við fjárlög ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, fjárlög sem hafa verið óskaplega rýr undanfarin fjögur ár og rýrna enn meir fyrir þá verst settu í samfélagi okkar. Það er ekki náttúrulögmál að kerfi sem hefur verið byggt upp fyrir almannatryggingar sé eins og það er. Þetta er mannanna verk. Það er byggt upp hér á Alþingi þetta bútasaumaða skrímsli sem hefur verið saumað saman af fjölda ríkisstjórna undanfarna áratugi og er orðið að þvílíkum óskapnaði að enginn hefur yfirsýn yfir kerfið í heild sinni. Það er eiginlega orðið þannig að það er einhver tölva sem á að reikna út hvað er rétt og hvað er rangt. Það er vonlaust að rökræða við þannig tæki.
Því miður er staðan og staðreyndin sú að á síðasta ári var farið í frábært átak að mörgu leyti. Tekin var ákvörðun um að taka á þeim verst settu af þeim verst settu í þessu kerfi og það var gert, má segja, af illri nauðsyn. Bæði hafði umboðsmaður Alþingis komist að þeirri niðurstöðu og það var eiginlega orðið svolítið aumt hjá ríkisstjórninni að vita af fólki í búsetuskerðingum og skerðingarnar voru svo stjórnlausar að sumt fólk fékk eiginlega ekki neitt til framfærslu, átti kannski að lifa á 60.000–70.000 kr. á mánuði. Við gerum okkur fulla grein fyrir því að á Íslandi er það gjörsamlega vonlaust. Það var farið í átak til að sjá til þess að þessi hópur fengi lágmarksellilífeyri. Maður hélt í góðri trú að lágmarksellilífeyrir væri það sem fólk fengi að lágmarki. En nei, ríkisstjórnin ákvað að setja inn að þessi hópur fengi 10% minna en lágmarksellilífeyrinn sem enginn getur lifað á, varla tórt á og hvað þá meira. Þá hefði maður haldið að nú væri komið nóg vegna þess að þarna var verið að láta fólk reyna að lifa af rétt rúmum 200.000 kr. útborguðum. En það var ekki svo. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur samþykkti og tók upp aftur krónu á móti krónu skerðingar og setti þær inn hjá þessum hópi líka. Þeir sem hafa ekki lifað í þessu kerfi og hafa ekki lent í krónu á móti krónu skerðingum vita örugglega ekkert hvað er verið að tala um en á einföldu máli er það þannig að allar skattskyldar tekjur, hvaða nafni sem þær nefnast, skerða viðkomandi bætur krónu á móti krónu. Króna á móti krónu skerðing er ekkert annað en 100% eignaupptaka og versta form fjárhagslegs ofbeldis sem hægt er beita, held ég. Spáum í það: Ef við tökum hátekjuskatt sem dæmi þá myndi engum detta í hug, það yrði allt brjálað í þessu samfélagi ef einhverjum dytti það í hug, að setja á 100% hátekjuskatt, ef þar væri tekin króna á móti krónu á ákveðna upphæð. Segjum allir þeir sem væru komnir í hátekjuskattinn og komnir yfir milljón, það væri bara króna á móti krónu skattur eftir það. Þessir aðilar gætu samt lifað af því sem þeir fá en þeir sem eru í almannatryggingakerfinu eiga ekki möguleika á að lifa af í krónu á móti krónu skerðingu plús að þeir fá 10% minna en það minnsta sem hægt er að finna í kerfinu.
Eftir öll loforðin sem voru gefin fyrir kosningarnar 2017 — og ég tel að sennilega hafi allir flokkar gefið loforð um að taka á krónu á móti krónu skerðingu öryrkja. Eldra fólkið var komið út úr henni. Það var búið að fá nýtt kerfi þannig að króna á móti krónu skerðingar voru farnir þaðan. En á einhvern snilldarlegan hátt hvarf umræðan og hún er eiginlega dottin upp fyrir vegna þess að sett var á 65 aura skerðing á móti krónu. 65 aurar á móti krónu var meira að segja svo skrýtin framkvæmd að það olli sumum hlutfallslega meiri skaða en það gerði gagn, af því að kerfið virkar á þann furðulega hátt að ef ráðstöfunartekjurnar aukast þá skerðir það alla bótaflokka sem geta skerst. Það köllum við keðjuverkun innan almannatryggingakerfisins en síðan fer það líka út fyrir það og inn í bótakerfi bæjar- og sveitarfélaga.
Það er ekkert í þessu fjárlagafrumvarpi sem glæðir von þeirra sem verst hafa það um að fram undan sé góðæri og blóm í haga. Það er alveg sama hversu oft orðið velsæld stendur í ríkissáttmálanum, hversu oft hæstv. forsætisráðherra nefnir það orð í ræðu sinni — ég held að ríkisstjórnin hafi tekið þá ákvörðun að segja það bara nógu oft, velsæld, velsæld, velsæld, í annarri hverri setningu, og þá getur hún trúað því að það gildi fyrir alla. En það virkar ekki þannig. Ríkisstjórnin verður að taka ákvörðun um að gera eitthvað í málunum, taka ákvörðun og sýna þeirri stöðu sem þetta fólk er í a.m.k. smávirðingu. Og hver er virðingin? 1%. Það stendur hér, 1% umfram vísitölu neysluverðs. Samt stendur skýrt í 69. gr. almannatryggingalaga að bætur almannatrygginga skuli hækka samkvæmt launaþróun.
Eins og kom fram í ræðu minni og andsvörum fyrr í dag, bæði við fjármálaráðherra og aðra, þá hækkaði þetta 1. janúar 2021 hjá þessum hópi um 3,6%. Á sama tíma var kaupið okkar hækkað um 7%. Með reiknibrellu var reynt að sannfæra fólk um að það væri að fá launahækkun upp á 3,6%, en það bara rétt náði verðbólgunni. Og aftur er sami leikurinn leikinn, nákvæmlega sami leikurinn: Þið fáið verðtrygginguna, 1% umfram það. Þeir verst settu, þetta 1%, 2.500 kr., 1.500 kr. eftir skatt. Einhver sagði að ef hann reiknaði skerðingarnar til enda myndi það skila honum 23 kr. í umslagið, frábær jólabónus það. Þetta sýnir okkur svart á hvítu að það er ekki verið að fara að lögum. Launaþróunin er nú þegar komin yfir 7%. Hagur þeirra sem hafa fengið þá hækkun var sagður hafa batnað um 2,9%. En sá hagvöxtur er tekinn af þessum hópi, hann fær hann ekki, það er ekki til umræðu, ekki frekar en undanfarna áratugi. Frá því 2009 er kjaragliðnunin orðin um 40%. Hvað þýðir það á mannamáli? Það þýðir að ef rétt væri gefið væru þær bætur almannatrygginga sem flestir fá í kringum 350.000 kr. Þá erum við að tala um eins og lágmarkslaun fyrir skatt. Það væri engin ofrausn. Ef við gæfum rétt ætti þessi hópur að fá í dag 350.000 kr. skatta- og skerðingalaust. Það ætti að vera lágmarksframfærsla. Tökum sem dæmi þegar talað er um lágmarksframfærslu t.d. á evrusvæðinu. Þar er talað um að meðaltal lágmarksframfærslu sé 60% af meðallaunum í viðkomandi landi. Ef við myndum heimfæra það yfir á Ísland værum við, öllum til furðu, í 330.000–340.000 kr. eftir skatt.
Segjum að við séum með einstakling í dag sem fær útborgað úr þessu kerfi um 250.000 kr. og hann þarf að borga 200.000 í leigu, hann þarf að borga læknis- og lyfjakostnað og síðan þarf hann að lifa. Ég skal segja ykkur alveg eins og er að það myndi enginn hérna inni vilja vera í þeirri stöðu, það myndi enginn hérna inni sjá hvernig þeir ættu að fara að þessu. Hvað er fólk þá að gera? Jú, það fer í lélegra húsnæði. Það fer jafnvel í húsbíl, hjólhýsi. Ekki getur það tjaldað.
Það er síðan haldið áfram á þessum nótum í öllu kerfinu og við megum ekki gleyma því að í þessum ömurlegu aðstæðum erum við með börn, þúsundir barna sem fá ekki sömu tækifæri og önnur börn. Það hlýtur að segja eitthvað um okkur hér að við skulum geta haft svona kerfi við lýði og ekki í eitt ár, tvö ár, þrjú ár, fjögur ár, eins lengi og þessi ríkisstjórn hefur setið, heldur undanfarna áratugi. Það er undarlegt að við skulum vera búin að búa til þannig kerfi að staða þerra sem hafa það svona slæmt versnar alltaf. Maður hefði trúað því að við værum orðin svolítið siðmenntaðri þjóð og að við værum komin aðeins lengra í þróuninni, að það væri einhver samviska, eitthvað að knýja okkur áfram í því að reyna að gera betur. Auðvitað gat maður trúað því á sínum tíma þegar hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir sagði að það væri einmitt þessi hópur sem gæti ekki beðið lengur eftir réttlætinu. Þau gætu alls ekki beðið lengur eftir réttlætinu. Þetta var sagt í kosningabaráttu en þessi hópur bíður enn og verður því miður líklega að bíða í fjögur ár í viðbót.
Við erum með heilbrigðiskerfi sem ég get ekki séð í þessu fjárlagafrumvarpi að eigi eftir að batna mikið. Við erum með 100 aldraða einstaklinga fasta inni á hátæknisjúkrahúsi og kostnaður á hvern einstakling er 200.000 kr. á sólarhring. Ekki fyrir svo löngu síðan var einstaklingur útskrifaður af sjúkrahúsi og sendur heim. Hann var einstæður og bjó einn í íbúðinni sinni og síðan mætti einhver til að aðstoða hann. Sá fór í ísskápinn til að reyna að finna eitthvað ætt en það eina sem var til í ísskápnum, það sem blasti við þegar hurðin var opnuð, var lýsisflaska og maltdós. Það hlýtur að hafa verið erfitt að velja á milli þess að fá sér lýsi eða malt. En ef við færum þessa myndlíkingu yfir á daginn í dag, miðum við það sem er að gerast núna og mun gerast áfram, þá var þetta val til staðar hjá viðkomandi áður en er það ekki í dag. Það má þakka fyrir að geta valið annaðhvort, ekki hvort tveggja og mjög sennilega hvorugt.
Við verðum og eigum að fara að bretta upp ermarnar og sýna í verki að sú velsæld sem þessi ríkisstjórn, sem nú hefur tekið til starfa, boðar sé fyrir alla. En það er svo ótrúlega langt frá því að svo sé og við sjáum það strax á því að frítekjumark, aukafrítekjumark aldraðra, er fært úr 100.000 kr. í 200.000 kr. og sagt að það kosti 500 milljónir. Það er eiginlega svolítið fyndið vegna þess að inni í þeim 500 milljóna kostnaði er ekki tekið tillit til skatttekna af þeim launum sem viðkomandi einstaklingar vinna sér inn. Það er ekki tekið tillit til virðisaukaskatts af þessu eða annars óbeins hagnaðar fyrir ríkissjóð af því að þessir einstaklingar séu í vinnu. Þetta hlýtur að vera eitt það heimskulegasta sem hægt er að setja upp og ég hef eiginlega aldrei getað skilið þetta. Ríkisstjórnin hefur oft talað um að í framtíðinni verði svo mikið af eldri borgurum og þá muni vanta fólk til að vinna, vanta ungt fólk og vinnuafl. En á sama tíma er verið að lemja á þeim sem vilja vinna og banna þeim það. Og hvar birtist þessi ótrúlega heimska? Jú, í örorkukerfinu. Í því að ríkisstjórnin skuli hugsa það þannig að hún ætli að borga viðkomandi öryrkja ákveðna upphæð í hverjum mánuði en ef hann dirfist að reyna að bæta við þá upphæð og fara að vinna, sýna frumkvæði, ætli hún að lemja á honum, skerða hann. Ég skil ekki svona heimsku.
Flokkur fólksins lagði fram frumvarp um að leyfa öryrkjum að fara út á vinnumarkaðinn, finna sér vinnu og vinna í tvö ár. Hvers vegna? Jú, Svíar gerðu þetta. Hverju skilaði það? Jú, 30% þeirra skiluðu sér ekki aftur inn í kerfið. Það segir okkur þá sögu að við erum með kerfi sem er arfavitlaust og við erum búin að reyna, ekki einu sinni, ekki tvisvar, ekki þrisvar heldur mörgum sinnum, að breyta þessu kerfi. Péturs Blöndals nefndin, ég var í henni, í endurskoðun almannatrygginga, og ég var í síðustu nefnd um endurskoðun almannatrygginga: Endalausar hugmyndir, frábærar hugmyndir, en því miður flestar eða allar slegnar út af borðinu vegna þess að ríkisstjórnin sér ekki eða vill ekki sjá stöðu þeirra öryrkja sem hafa það verst í dag og skilur þar af leiðandi ekki þá andlegu stöðu sem viðkomandi hópar eru í. Þeir eru í þeirri stöðu að finnast og hafa fundist að sér vegið alla tíð. Það er ömurlegt og mannskemmandi kerfi þar sem þú veist ekki frá mánuði til mánaðar hvað þú færð, vegna þess að kerfið virkar þannig að ef þú gefur ekki nákvæmlega réttar tölur upp til Tryggingastofnunar um tekjur þínar færðu rukkun ári seinna. Ég kallaði þetta skerðingardaginn mikla eða skelfingardaginn vegna þess að það er auðvitað skelfileg staða fyrir einstakling ef hann fær einhvers staðar smátekjur að vera laminn niður og lenda í ótrúlegum fjárhagslegum raunum. Ég er ekki að tala um eitthvað sem ég þekki ekki. Ég hef lent í nákvæmlega þessu sjálfur, verið í þeirri stöðu að fá stórgreiðslur úr lífeyrissjóði og hugsa að núna geti ég borgað skuldir mínar og komið mér á réttan kjöl og gert það. En ég var ekki lengi í paradís því að ári seinna sagði Tryggingastofnun: Þetta gengur ekki upp. Við tökum af þér hverja einustu krónu í heilt ár. Ég veit að margir hafa lent í þessu. Margir þarna úti sjá nú þegar að um mánaðamótin verða teknar af þeim 30.000 kr., 40.000 kr., 50.000 kr., 60.000 kr., jafnvel meira, vegna þess að þeir hafa fengið smátekjur einhvers staðar annars staðar árin áður og ekki gefið það upp á réttum tíma.
Það er ofsalega mikilvægt að ríkisvaldið sé ekki að níðast á fötluðu og langveiku fólki. Við erum með kerfi sem er ótrúlega viðkvæmt, sérstaklega í heilbrigðiskerfinu og sérstaklega er varðar börn. Ég hef alltaf sagt og ætla að segja það hér enn og aftur, og ég mun segja það mörgum sinnum þangað til það skilst vonandi í eitt skipti fyrir öll: Eitt barn á bið eftir þjónustu er einu barni of mikið. Hæstv. fjármálaráðherra talaði í dag um fjölda öryrkja, 10% af þjóðinni, vinnandi fólki. Það yrði að bregðast við því. Hvað er ríkisstjórnin að gera til að bregðast við þessu? Ég get alveg sagt ykkur það. Hún er að framleiða öryrkja á færibandi inn í framtíðina. Hvernig fer hún að því? Jú, með því að neita börnum um þjónustu. Þriggja ára barn sem þarf talþjálfun, hvernig er staðan á því eftir þrjú ár þegar það kemst að? Hvernig kemur skólaganga þess út? Eða barnið sem ég heyrði um, sjö ára, sem þurfti að fá greiningu, fara í gegnum greiningarferlið, og það var sagt: Þið megið þakka fyrir ef barnið kemst að þegar það er orðið níu eða tíu ára. Hvað verður um þessa einstaklinga þegar þeir fara í gegnum skólakerfið? Þetta er ávísun á öryrkja framtíðar. Þess vegna segi ég: Við verðum að sjá til þess að börn séu ekki að bíða eftir þjónustu.
Ég fékk skýrslu um stöðu biðlista barna í vor eftir Covid og þá höfðu flestir biðlistar tvöfaldast. Eftir greiningar vorum við komin upp í 1.400 úr 700. Hvernig haldið þið að staðan sé núna? Ég er alveg með það á hreinu að hún hefur stórversnað. Við erum með ótrúlegan fjölda af eldri borgurum sem þurfa liðskiptaaðgerðir á bið. Og eins og ríkisstjórninni er mjög tamt þá hendir hún krónunni og sparar aurana. Þú mátt fara í liðskiptaaðgerð til Svíþjóðar en þú mátt ekki fara í liðskiptaaðgerð hinum megin við götuna þar sem hægt væri að gera þrjár aðgerðir fyrir eina. Það myndi öllum þykja þetta léleg skipti. Ég vona samt heitt og innilega að eitthvað sé að birta til.
Það er annað sem er líka grafalvarlegt. Ég hjó eftir því að Björn Zoëga, sem vinnur á Karólínska-sjúkrahúsinu í Svíþjóð, sagði frá áhyggjum Svía af því að það kæmi holskefla af veiku fólki vegna krabbameins, vegna þess að veikt fólk með krabbamein og ýmsa aðra sjúkdóma hefur setið á hakanum í Covid. Við vitum að það er verið að stöðva hjartaaðgerðir liggur við samdægurs út af Covid. Ég spyr: Erum við komin á þann stað að fólk megi deyja úr öllu nema Covid? Það hlýtur að fara að verða krafa að við sjáum til þess að þótt Covid sé í gangi fái þeir sem þjást af öðrum sjúkdómum sína þjónustu. Það ætti ekki að vera mikið mál.
Ég vona síðan að ríkisstjórnin sjái til þess í eitt skipti fyrir öll að gera eins og gert var í fyrra. Það yrði æðislegt ef settar yrðu 100.000 kr. skatt- og skerðingarlausar til þeirra verst settu núna fyrir jólin, bara auka. Það veitir ekki af. Við erum með hundruð ef ekki þúsundir í biðröð eftir mat og við eigum að sjá sóma okkar í því að sjá til þess að enginn þurfi að standa í biðröð eftir mat á Íslandi. En við gerum það samt ekki. Ég er búin að tala um þetta síðan ég kom í þennan ræðustól fyrir fjórum árum, en það breytist ekkert vegna þess að ríkisstjórninni er alveg sama. Hún ætlar ekki að breyta þessu. Þá spyr ég mig: Hvers vegna ekki? Hvað er það sem veldur því að þessi ríkisstjórn, sem er búin að vera í fjögur ár og ætlar að vera í fjögur ár í viðbót, er ekki tilbúin til að hjálpa þeim sem eru verst settir og sjá til þess að þeir geti farið í búð, keypt sér mat á eigin forsendum og þurfi ekki að standa í biðröðum eftir mataraðstoð rétt fyrir jólin?