152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hans einörðu baráttu við að halda á lofti málstað þeirra sem búa við fátækt í íslensku samfélagi. En það eru kannski nokkrir punktar sem ég staldraði við sérstaklega í ræðu hans, í mati hans á stöðu mála þessa hóps eftir að hafa rýnt fjárlagafrumvarp hæstv. fjármálaráðherra. Mig langaði til að spyrja hann sérstaklega út í hóp sem stendur mér nærri, sem eru einstæðir foreldrar. Ég hef aðeins skoðað þessi mál og veit, eins og ég geri ráð fyrir að við vitum flest hér í þessum sal, að staða fólks á húsnæðismarkaði og heilsufar eru lykilþættir sem spá fyrir um það hvort fólk búi ekki aðeins við fátækt heldur við sárafátækt. Einstæðir foreldrar eru í aukinni hættu á að lenda í sárafátækt og náttúrlega um leið börn þeirra. Við þekkjum öll þessar harmsögur, en mér finnst það samt vera spegill á að það er skömm sem fylgir þessu líka, að það er óskaplega sjaldan sem við sjáum foreldra koma fram og lýsa aðstæðum barna sinna undir nafni í fjölmiðlum. Það segir ákveðna sögu líka. Ég heyri dóm hv. þingmanns um síðasta kjörtímabil en mig langaði í fyrri spurningu að spyrja hann: Þegar hann rýnir þetta fjárlagafrumvarp með hagsmuni þessa hóps í huga, einstæða foreldra í fátækt eða jafnvel í sárafátækt, eru einhver merki í því um jákvæð skref í þágu þessa hóps?