152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[18:57]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er í grunninn mjög góð spurning. Ég var í nefndinni sem kennd var við Pétur Blöndal á sínum tíma og svo í síðustu nefnd. Nýtt kerfi á gömlum grunni, það er það sem var vandamálið. Við búum ekki til nýtt kerfi með því að spara og við eigum ekki að fara út í það. Ef við ætlum að búa til nýtt kerfi með þeirri hugsun að við ætlum að spara þá er kerfið búið áður en við byrjum. Það gengur aldrei upp því að þá værum við að segja að við ætluðum að hafa þetta fólk með enn lægri tekjur en það hefur núna, það getur ekki gengið; að við ætlum að skerða atvinnutekjurnar enn meira ef einhver fer í nýja kerfið og byrjar að vinna. Hvernig í ósköpunum er hægt að sjá sparnað út úr því? Við verðum að byrja á annarri hugsun, eins og ég hef alltaf sagt. Þú ferð og segir við fólk: Ef þú getur unnið farðu að vinna. Ég myndi bara vilja segja strax í dag: Tveggja ára aðlögun, þú mátt fara út að vinna. Þú getur kannski unnið í þrjá mánuði — það hefur komið fram að sumir einstaklingar, sérstaklega þeir sem stríða við geðræn vandamál, geta kannski unnið í þrjá mánuði og detta svo út. En ef þú vinnur í þrjá mánuði áttu 21 mánuð af tveimur árum eftir. Þú færð þessa tveggja ára aðlögun. Ríkisstjórnin er að tala um að spara, hverju myndi það skila ef þessir einstaklingar, sem þarf hvort sem er að borga, myndu skila skattinum. Þar fengi ríkið strax tekjur á móti. Í þessu kerfi fengi ríkið strax tekjur á móti. En á sama tíma fengi einstaklingurinn hvata til að vinna af því að hann sæi fram á að fá aðeins meira í vasann til þess að lifa aðeins betra lífi.