fjárlög 2022.
Forseti. Ég heyri að við hv. þingmaður skiljum þetta með sama hætti. Ég er innilega sammála því að nýtt kerfi, hvernig sem það mun líta út, eigi alls ekki að innleiða á þeim forsendum að það sé sparnaðaraðgerð, enda getur það ekki verið þannig. Við vitum að það bara getur ekki verið þannig. Hv. þingmaður sat í nefndinni sem kennd er við Pétur heitinn Blöndal og ég þekki aðeins til starfa annarra nefnda á þessum vettvangi. Það hafa verið haldnir margir tugir ef ekki hundruð funda um þessi málefni en það hefur vantað pólitískt frumkvæði og pólitískan vilja til að gera þær breytingar sem þarf að gera. Og ég held að við séum að nálgast það úr sömu átt, þ.e. að gefa fólki með skerta starfsgetu færi á að starfa eftir starfsgetu sinni án efnahagslegra refsinga en byggja samt undir framfærsluna þannig að allir séu með lágmarksframfærslu og þá erum við ekki að tala um framfærslu sem er 80.000 kr. undir lágmarkslaunum í landinu.