152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[20:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Auðvitað eru þetta á endanum að miklu leyti samanburðarvísindi. Við berum okkur saman við aðrar þjóðir til að reyna að setja puttann á púlsinn, hvort við erum að skjóta yfir markið eða undir það hvað umfang hins opinbera varðar. Síðan er auðvitað þessi endalausa rökræða á milli vinstri og hægri manna um það hversu umfangsmikið ríkið eigi að vera. Hv. þingmaður nefndi hér að ég hefði talað um útþanda gjaldahlið. Mér finnst tekjuhliðin í raun miklu meira útþanin ef svo má að orði komast. Við erum býsna skattpínd hér eins og ég kom inn á í ræðu minni, ef við horfum á með hvaða hætti okkur er raðað innan OECD-landanna þegar tillit hefur verið tekið til fjármögnunar lífeyriskerfisins. Síðan kemur þetta aftur að því að skilja á milli fjárfestingar hins opinbera og reksturs og það er hlutur sem ég held að við setjum ekki nógu mikla orku í að átta okkur á og aðgreina.