152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:14]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir að koma upp í pontu og svara spurningum mínum. Það gleður mig að hann skuli segja orðin „komið sér saman um“, hann talar um að Evrópuríki hafi komið sér saman um þetta samstarf. Sannarlega hefur Dyflinnarsamstarfinu verið þvingað upp á margar Evrópuþjóðir og margar þeirra hafa kvartað undan því. Það var raunar varað við mögulegum afleiðingum strax í upphafi. Stærri þjóðirnar hafa þráast við að viðhalda þessu samkomulagi vegna þess að það hentar þeim. Það sem er svo áhugavert við Dyflinnarsamstarfið er það að í Dyflinnarreglugerðinni og alls staðar í öllum skýringargögnum með henni er talað um samstöðu eða það sem á ensku er kallað „solidarity“, samstöðu Evrópuríkja. En reyndin er sú að samstaðan er meðal ríkja í norðri um að ýta vandanum, ýta vanda fólks á jaðarinn. Það liggur alveg ljóst fyrir að ef það ríkti raunveruleg samstaða í Evrópu og Evrópuríki myndu taka jafna ábyrgð og myndu taka þetta verkefni styrkum höndum í raunverulegri samstöðu þá væri þetta ekki vandamál, þá værum við ekki einu sinni tala um þetta.

Það sem ég vil líka nefna er að þó að þetta sé samkomulag sem við höfum sagt já við að taka þátt í þá er enginn, það er ekkert ríki sem móðgast yfir því að fá ekki sendan til sín umsækjanda um alþjóðlega vernd. Okkur ber engin skylda til þess, ekki samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, ekki samkvæmt neinu nema eigin stefnu. Við höfum alltaf heimild, og það er skýrt í Dyflinnarreglugerðinni og íslenskum lögum, reyndar er talað um skyldu í íslenskum lögum en það er önnur saga. Í Dyflinnarreglugerðinni er talað um heimild ríkja til að taka mál til efnismeðferðar ef þeim sýnist svo, og það er alveg skýrt. Þessi mál sem eru einna alvarlegust í dag, status Grikkland, status Ungverjaland, þau heyra ekki undir Dyflinnarreglugerðina vegna þess að það er búið að afgreiða umsóknir þessa fólks. Það er byggt á íslenskum lögum og stefnu íslenskra stjórnvalda. Okkur ber engin skylda, og höfum að mínu mati ekki einu sinni heimild, til að senda þetta fólk til baka.