152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:27]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er góð spurning og þakka ég hv. þingmanni fyrir. Ég er með einstaklega gott dæmi, það eru reyndar mörg dæmi, en það gerðist nefnilega dálítið áhugavert í fyrrasumar. Árið 2018 komst kærunefnd útlendingamála að þeirri niðurstöðu að aðstæður í Ungverjalandi, aðstæður flóttafólks, séu ekki bjóðandi mannfólki og fellir úr gildi fullt af ákvörðunum Útlendingastofnunar um að vísa fólki þangað til baka. Þetta gerist aftur árið 2019. Árið 2020 kemur til Íslands hópur fólks — mig langar að gera gæsalappir með fingrunum — sem hafði fengið alþjóðlega vernd í Ungverjalandi. Þetta voru 10, 15 manns, eitthvað svoleiðis, ég er ekki með nákvæma tölu á reiðum höndum, sem áttu það sameiginlegt að vera fólk með menntun, virkilega klárt og flott fólk, og það hafði komið til Íslands vegna þess að það hafði heyrt að Ísland væri mannréttindaríki. (Forseti hringir.) Ég er ekki viss um að stór hluti þessara einstaklinga, sem flest féllu á 12 mánaða frestinum að lokum, — sem er súrsætt (Forseti hringir.) vegna þess að í fyrsta lagi fáum við ekki úrskurð dómstóla um þessa framkvæmd — séu vinnufær í dag (Forseti hringir.) en þau voru það daginn sem þau komu.