152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:33]
Horfa

félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Mig langaði kannski að segja bara að lokum, og óska eftir góðu samstarfi við hv. þingmann, að í stjórnarsáttmála er talað um að móta eigi heildstæða stefnu í málefnum útlendinga þar sem áherslan verður kannski meira á einmitt það sem ég kom inn á áðan og hv. þingmaður tók undir, þ.e. að fólk hafi frekari tækifæri til aðlögunar til að vera fullgildir meðlimir í samfélaginu, til virkrar þátttöku, ekki bara í samfélaginu heldur líka á vinnumarkaði sem hluta af samfélaginu. Það segir líka í stjórnarsáttmálanum að þar sé stefnt að því að rýmka ákvæði sem snúa að útgáfu dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku. Þetta eru verkefni sem þarf að sjálfsögðu að vinna í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins en eru held ég mjög góð vísbending um það (Forseti hringir.) hvert við þurfum að halda áfram til að reyna að auka aðlögun og þátttöku þessa fólks í samfélaginu.