152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:14]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það hefur verið forgangsmál að bæta kjör eldri borgara með frekar lélegum árangri undanfarin ár og jafnvel áratugi. Flokkur hv. þingmanns er búinn að vera við völd hér í 26 af síðustu 30 árum eða þar um bil. Hv. þingmaður kom inn á það áðan að verið væri að hækka frítekjumark atvinnutekna. Við vitum hins vegar að þetta er pínulítið skref fyrir lítinn hluta eldri borgara. Aðalmálið er auðvitað skerðingar inn í lífeyriskerfinu sjálfu, sem er miklu stærra mál og kostar mikla fjármuni að stíga myndarleg skref þar. Það er kannski vel viðeigandi að spyrja hv. þingmann hvort hann muni beita sér fyrir því að farið verði í rækilega uppstokkun á kerfinu varðandi þessar skerðingar, sem bæði eldri borgarar og öryrkjar tala mikið um og kvarta mikið undan og hafa gert um margra ára bil, að þar verði stigin einhver raunveruleg skref sem svo sannarlega skiluðu almennilegri búbót fyrir þann hóp.