152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:26]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það varðar bjöllugang herra forseta, og forseta almennt séð í dag, hann er dálítið hávær. Við fengum þær ábendingar á síðasta kjörtímabili að gott skell á bjölluna — hún er rosalega viðkvæm, ég þekki það sjálfur — fer rosalega mikið í útsendinguna. Það truflar þingmenn alveg jafn mikið eða lítið hversu hávært sem það er en það truflar útsendinguna víst alveg gríðarlega mikið. Ég vil bara biðja virðulegan forseta að taka tillit til þess.