152. löggjafarþing — 3. fundur,  2. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[22:54]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það eru staðreyndir málsins að atkvæðin voru talin, það voru greidd atkvæði, kjósendur kusu með atkvæðaseðlum, þau voru sett ofan í kassann, tekið upp úr kössunum og talið, um morguninn og svo aftur seinni partinn. Það eru staðreyndir málsins og það voru annmarkar líka. En það þurfa að vera líkur til þess að annmarkarnir hafi áhrif á úrslit kosninganna vegna þess að lögin segja það, ef ætla megi að gallinn eða annmarkarnir hafi haft áhrif á úrslit kosninganna. Þessar líkur voru ekki fyrir hendi. Það voru engar líkur til þess að annmarkinn hefði haft áhrif á úrslit kosninganna, hvorki skráning í gerðabók eða neitt. Það var ekkert sem benti til þess, karlinn í tunglinu kom ekki og breytti atkvæðunum. Þessir fjórir starfsmenn Hótel Borgarness áttu ekki við atkvæðaseðlana. Það kemur fram í lögregluskýrslu. Það kom fram fyrir nefndinni líka að oddviti yfirkjörstjórnar, trúnaðarmaður kosninganna, kosinn af Alþingi, átti ekki við atkvæðin. Það var engum öðrum til að dreifa nema oddvitanum og þessum fjórum starfsmönnum. (Gripið fram í.) Við trúum því. Það eru staðreyndir. Við getum fræðilega eða heimspekilega farið að efast um að einhver einhvers staðar hafi komið …(Gripið fram í: Jólasveinninn.) Kannski jólasveinninn eða karlinn í tunglinu, en það var ekki. Það var einfaldlega ekki. Og líkurnar á að það hafi gerst eru nánast engar en staðreyndirnar eru á atkvæðaseðlunum. Það eru staðreyndir og niðurstöður kosninganna.