152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

um fundarstjórn.

[10:32]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti sagði að hann gerði ráð fyrir að fundur gæti staðið lengur en spurði ekki hvort einhver hreyfði andmælum. Ég hreyfi andmælum við því. Það var ekki talað um það í forsætisnefnd að það ætti að vera lengri þingfundur í dag. Það var bara í gær sem var talað um það. Þannig að ef forseti ætlar eitthvað að reyna að fara að — þetta er svona þetta klassíska, þetta er svipað og að senda fyrirspurnir án þess að spyrja okkur. Við erum að skipuleggja hér þingstörfin líka. Við þurfum líka að skipuleggja okkur, þannig að: Forseti, taktu vinsamlegast tillit til þess.