fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Samfélagið okkar er gott. Ég er mjög stolt af því að vera Íslendingur og búa í góðu samfélagi. En við sem erum í stjórnmálum, og það er líka kosturinn við smæð landsins, finnum alveg sárindin. Við erum nýbúin í kosningabaráttu, fólk er að snerta okkur, tala við okkur og segir: Við erum ekki að fá þessa þjónustu.
Við tölum við fjölskyldur fatlaðra barna. Á fyrsta degi þegar mætt er í skólann, og fólk er glatt yfir því að börnin eru að komast á starfsbraut, er sagt: Hvað svo? Hvað eftir fjögur ár? Og þegar við hugsum t.d. um menntun og atvinnuþátttöku fatlaðra barna hefur ekkert gerst þegar kemur að frekari úrræðum, bara svo það sé nefnt. Að mínu mati er göfugur hugur í stjórnarsáttmálanum og þar er margt gott en eins og staðan er núna hefur nákvæmlega þessum hluta ekki verið sinnt nægilega. Það sem ég óttast er að þrátt fyrir falleg orð í stjórnarsáttmála séum við ekki (Forseti hringir.) — af því að við erum að ræða fjárlagafrumvarpið — að sjá þess merki að það eigi að fylgja því eftir að jafna tækifærin í landinu.