152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:09]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Mér finnst svo áhugavert að þegar er verið að fleygja fram fullt af flottum orðum og hugtökum, eins og jöfn tækifæri og efnahagslegur stöðugleiki, þá finnst mér oft einhvern veginn skorta að fólk átti sig á því hver skilgreiningin á þessum hugtökum er og hvernig fólk er að hugsa þetta. Mér finnst einhvern veginn skorta heildræna sýn á samfélagið, sérstaklega þegar talað er um efnahagslegan stöðugleika, að hann sé forsenda þess að miklar kjarabætur heimilanna undanfarin ár verði varanlegar, eins og stendur í fjárlagafrumvarpi. Efnahagslegur stöðugleiki er ekki bara lág verðbólga, lágir vextir, lítið atvinnuleysi, lítið gengisflökt og hagvöxtur. Þetta snýst líka um hvernig við mælum t.d. niðurbrot lífríkis, hvernig við mælum loftslagsbreytingar, aukna misskiptingu eða rýrnandi trú á lýðræðinu og opinberum stofnunum og allt það sem hlýtur að þurfa að vera í lagi. Það hlýtur að vera forsenda efnahagslegs stöðugleika að þessi atriði og þessi hluti samfélagsins sé í lagi. (Forseti hringir.) Mér finnst því vanta þessa heildrænu sýn og mig langar bara til að heyra aðeins hugsanir hv. þingmanns varðandi það.