fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágætisræðu. Ég hjó eftir að þingmaðurinn talaði um gallann við að velja að kjósa svona seint. Nú hefur hv. þingmaður mjög góða þingreynslu og ég velti fyrir mér hvort hún merki einhverjar breytingar á óþoli gagnvart umræðu. Talað var um að í rauninni þyrfti litla umræðu af því að þetta væri byggt á fjármálaáætlun sem hefði verið samþykkt síðasta vor. Síðasta vor var talað um að litla umræðu þyrfti um fjármálaáætlun vegna þess að svo skammt væri liðið frá því að við hefðum samþykkt fjármálaáætlun að hausti, sem var óvenjulegur tími vegna Covid o.s.frv.
Mig langar að spyrja hv. þingmann aðeins út í nauðsyn umræðunnar um fjárlög og (Forseti hringir.) þess að við köfum djúpt í þessu, ekki bara hér heldur auðvitað líka í nefndinni.