fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að segja að ríkisstjórn hverju sinni geti ekki breytt stjórnkerfinu og Stjórnarráðinu að einhverju leyti, bæði til að laga sig að nýjum veruleika en líka að pólitískum áherslum. Ég ætla ekkert að segja að það sé ekki hægt og eigi ekki að gera. En það er kannski alveg óþarfi að henda svona handsprengjum eins og gert hefur verið á síðustu dögum. Það eru kosningar í maí, ríkisstjórn er komin í júní, þá hafa þingið og stjórnin tækifæri til að byggja undir öflugt fjárlagafrumvarp sem fær betri og ítarlegri umræðu. Hægt verður að ræða það betur hvernig stjórnkerfi við höfum, hvert fjármunirnir eigi að fara. Það er þetta sem við erum að kalla eftir, lýðræðislegri, gegnsærri umræðu um fjárlagafrumvarpið og að við höfum tíma til þess að ræða málið, til að sinna því ábyrgðarhlutverki sem kjósendur hafa falið okkur hverju sinni. Við náum því ekki með þingið allt í spreng korteri fyrir áramót. Mér skilst, samkvæmt fréttum morgunsins, að fjárlagafrumvarpið verði ekki klárað fyrr en rétt undir áramót.