152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:22]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alla vega ljóst að einu þrír einstaklingarnir sem héldu sínum ráðherraembættum voru formenn flokkanna. Þeir höfðu ekki þá tiltrú á hinum ráðherrunum að þeir treystu þeim til að halda áfram með einhver góð verkefni þannig að öllu var ruglað. Að því sögðu líst mér ekki illa á að setja saman menningu, ferðaþjónustu og fleiri verkefni sem þarna eru. Mér finnst það bara nokkuð spennandi ráðuneyti. Ég skil hins vegar ekki af hverju verið er að slíta í sundur skólamálin. Það finnst mér mjög sérstakt varðandi heildstæða nálgun í skólamálum. Vísindin og háskólarnir tengjast náið, ekki spurning, það á að ýta undir það áfram, en það hefur líka áhrif inn á önnur skólastig. Það hefur t.d. lengi verið rætt um fagháskóla, hvar mun hann falla? Hvert mun fagháskóli fara? Það skiptir okkur máli að ýta undir fagháskólastigið, hvernig sem við síðan gerum það. Ég er ekki andsnúin öllum breytingum núna en mér finnst miður að sjá þessa miklu uppskiptingu þegar kemur að skóla- og menntamálahlutanum.