152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:04]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, hún var mjög góð yfirferð um margt. Ég ætlaði aðeins að tæpa betur á því sem kom reyndar fram í andsvari rétt áðan við sömu ræðu, það er þetta með veiðigjöldin og þau sem tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Ég er svolítið sammála því sem hér kom fram að það er mikilvægt að greidd sé af hálfu stórútgerðarinnar réttlátari upphæð í veiðigjöld. Þetta er auðvitað greiðsla fyrir afnot af auðlind, þetta er ekki skattur, svo ég komi aðeins inn á það líka, og góð orð hv. þingmannsins um að það er áhugavert að þeir flokkar sem helst tala fyrir markaðslausnum skuli loka á það þegar kemur að þessu. Ég er mjög sammála því sem kom fram að hér er hægt að slá tvær flugur í einu höggi. Það er hægt að ná fram ákveðnu réttlæti, hægt að ná fram miklu meiri sanngirni, en um leið auka tekjur ríkissjóðs. Ég held að það hljóti eiginlega að vera sú leið sem við ættum að reyna að einblína á núna þegar við erum að ræða um fjárlög í þeirri viðkvæmu stöðu sem ríkissjóður er í.

En það sem ég myndi vilja spyrja hv. þingmann um er hvort hann hafi kannski einhverja tölu í huga, hversu mikið væri hægt að auka tekjur ríkissjóðs með því að búa þannig um hnútana að veiðigjöldin væru sanngjarnari upphæð, og síðan líka í framhaldinu hvort hann sé bjartsýnn á að þau mál þokist eitthvað á kjörtímabilinu, því að nú er jú kominn nýr sjávarútvegsráðherra. Ég benti á það í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra að hinn nýi hæstv. sjávarútvegsráðherra hefur aldeilis talað með öðrum hætti en þeir sem eru með hæstv. ráðherra í stjórn, þ.e. ráðherrar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það væri áhugavert að heyra sjónarmið hv. þingmanns um þetta.