152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:06]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Nei, mér er lífsins ómögulegt að áætla a.m.k. nákvæma krónutölu vegna þess að það felst kannski í eðli þess að láta markaðinn aðeins stýra þessu. Þegar vel árar er væntanlega boðið hærra og þegar verr árar þá kemur minna inn, sem gagnast svo auðvitað atvinnugreininni sjálfri. Hún er þá ekki að glíma við of íþyngjandi gjöld. Það er hins vegar algjör óþarfi að við gefum aðganginn að þessu í þeim mæli sem við erum að gera og það er alveg borðleggjandi, miðað við þær arðgreiðslur sem hafa verið út úr greininni á síðustu árum, að það er möguleiki að ná sanngjarnari gjöldum á best reknu stærstu útgerðirnar a.m.k.

Varðandi hvort það eru einhverjar líkur á breytingum með setu ráðherra úr röðum Vinstri grænna í þessu ráðuneyti þá er ég nú kannski ekki eins bjartsýnn vegna þess að mér finnst einmitt að breytingarnar sem urðu á síðustu ríkisstjórn og þessari hafi verið meira að taka ráðherra Vinstri grænna úr þeim málaflokkum þar sem stjórnarflokkana greindi á og færa þau bara yfir í málaflokka þar sem þau eru jafn íhaldssöm, afturhaldssöm og treg á breytingar þó að eflaust megi finna ýmsar yfirlýsingar í stefnuskrám þeirra.