152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:09]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hagspáin er vissulega bjartsýn og ég geri engar athugasemdir við að ríkisstjórnin miði við hana í sinni fjárhagsáætlanagerð. Við skulum bara sjá til hvernig rætist úr. Stóru vonbrigðin eru auðvitað samt að ríkisstjórnin hafi ekki haft augun meira á þeim kjaraviðræðum sem eru að fara að eiga sér stað eftir nokkrar vikur og mánuði og komið inn með ítarlegri, betri, skilvirkari aðgerðir til að bæta lífskjör og minnka þá spennu sem getur hlaðist upp þegar hagsmunaaðilar vinnumarkaðarins fara að eiga orð saman. Þetta hefði verið hægt að gera í húsnæðismálum, þetta hefðum við getað gert með stórtækum breytingum á barnabótum, þetta hefði verið hægt að gera á svo margan hátt.