152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:15]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Jú, algjörlega. Ég hjó eftir því að lesið var upp úr stjórnarsáttmálanum. Ég er löngu búinn að setja hann upp í hillu, hann er í raun ekki til umfjöllunar í þessum fjárlögum. Þessi fallegu orð eru einhvern veginn markleysa. Það er andstyggileg leið til að skera niður að fela litlum og stórum bæjum og þorpum nærþjónustu þar sem sveitarstjórnarfulltrúar eru í mjög miklum daglegum samskiptum við það fólk sem þarf á þjónustu að halda, en veita svo of litla peninga og láta niðurskurðinn eiga sér stað í gegnum sveitarfélögin í staðinn fyrir að fjármálaráðherra, forsætisráðherra og aðrir ráðherrar beri ábyrgð á þeim niðurskurði sjálfir.

Jú, þetta eru orðin tóm í stjórnarsáttmálanum. Ef reynt er að spegla kosningaloforðin í fjárlögunum birtist ekkert.