152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:47]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég óska hv. þingmanni til hamingju með jómfrúrræðu sína á Alþingi. Það er gleðilegt að heyra að kominn sé ötull talsmaður nýsköpunar hingað inn á þing. Ég leyfi mér að segja strax að ég tek kannski ekki undir allar forsendur og öll sjónarmið þingmannsins þótt hægt sé að taka undir margt.

Það er auðvitað þannig að ríkisstjórnin, bæði sem var og sem heldur áfram þetta kjörtímabil, hefur lagt gríðarlega áherslu á nýsköpun. Í fjárlögum þeim sem við ræðum hér eru heildarframlögin 30 milljarðar og er þá hækkun frá síðustu fjárlögum.

Til að svara því af hverju það er lækkun í heildarfjármagni 2023 og 2024 þá er því að svara að það var eflt mjög mikið, bæði inn í samkeppnissjóði og endurgreiðslur til fyrirtækja vegna rannsókna og þróunar til að bregðast við áhrifum heimsfaraldurs Covid. Hins vegar segir í stjórnarsáttmála að endurgreiðslur eigi bæði að gera varlegar og að sú tímabundna hækkun verði framlengd. Það eru nú þær útskýringar varðandi það sem kemur kannski mörgum spánskt fyrir sjónir en þetta er útskýringin á því. Í stjórnarsáttmála er einnig kveðið á um að efla eigi samkeppnissjóðina, vísisjóðina, og setja meira fjármagn inn í Tækniþróunarsjóð þannig að ég get ekki betur séð, og verð nú að leyfa mér að fullyrða það, að ríkisstjórnin láti engan bilbug á sér finna í að efla þessa nýju stoð á Íslandi og mikilvægi nýsköpunar og ríkisstjórnin er með augun á því.