fjárlög 2022.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það er náttúrlega mjög sorglegt að heyra að þau fjárlög sem við erum hér að lesa og ræða séu þegar orðin úrelt. Það eru tveir mánuðir frá kosningum og það voru tveir mánuðir til að búa til fjárlög. Hæstv. forsætisráðherra nefndi einnig að það væri nú dálítið síðan þau hefðu samið um flesta hluti og hefðu verið að dúlla sér við að búa til aðgerðaáætlunina. Kannski hefðu þau átt að dúlla sér líka við það að uppfæra þá fjárlagafrumvarpið. Það er svo sannarlega von mín að allir þessir sjóðir og öll þessi framlög muni hækka og hækka vel.
Það er nefnilega þannig að orðin sem þau nota mjög oft núna og nota m.a. í þessari stefnuyfirlýsingu sinni eru að vaxa út úr þessu í stað þess að skera niður. Það er hvergi hægt að vaxa betur en einmitt í nýsköpuninni. Það er meira að segja þannig að ef verið er að gera fjárfestingar, ef ríkið er að fjárfesta í hlutum tengdum grænni nýsköpun, þá er mjög ódýrt lánsfjármagn á alþjóðavettvangi fyrir ríki til að eyða í sjálfbærar og grænar fjárfestingar, fjárfestingar sem munu skila sér margfalt til baka inn í ríkiskassann.