152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[13:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil til taka undir þær áherslur sem birtust hér í þessu ágæta svari við andsvari. Ég sé í þeim útgjaldarömmum sem er unnið eftir í þessu fjárlagafrumvarpi að þótt framlög til nýsköpunarmála aukist vissulega núna milli ára er gert ráð fyrir að þau dragist hratt saman, þ.e. bein framlög til nýsköpunarmála, næstu árin, bein framlög ríkisins.

Ég vil spyrja hv. þingmann að gamni, af því að hann minntist áðan á forfeður sína: Hvernig myndi afa Gísla Rafns Ólafssonar, Einari Olgeirssyni, lítast á þessi fjárlög og þá pólitík sem birtist í þessu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar?