152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:02]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Nei, ég sé þess lítil merki, því miður, enda er þetta sama ríkisstjórn og samþykkti að niðurgreiða skyldi sálfræðiþjónustu og fékk á því kostnaðarmat upp á 800 plús milljónir og ákvað að 100 millj. kr. yrðu að duga. Þetta reddaðist einhvern veginn þannig. Við vitum líka, og það er það sem gerir þetta svo bagalegt og mikilvægt að hv. þingmaður bendi á þetta, að svona kreppur, svona einangrun frá samfélaginu, eins og við höfum verið að upplifa, leiða af sér verri geðheilsu. Þannig að það er beinlínis skylda ríkisstjórnarinnar að koma með mótvægisaðgerðir gagnvart þeim heilsumissi sem verður vegna þessarar frelsisskerðingar sem ríkisstjórnin er búin að koma á hérna.

Ef við skoðum meðalhóf aðgerða (Forseti hringir.) þá er það þannig að þegar ríkisstjórnin er að meta lögmæti aðgerða sinna varðandi (Forseti hringir.) ferðatakmarkanir, varðandi samkomutakmarkanir og allt þetta, þá þarf hún að koma með einhverjar mótvægisaðgerðir. (Forseti hringir.) Það þýðir líka að hún þarf að gera miklu betur í geðheilbrigðismálum (Forseti hringir.) en hún gerir í þessum fjárlögum.

(Forseti (JSkúl): Ég minni hv. þingmenn á að virða ræðutíma, sem er ein mínúta.)