fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég hlustaði á býsna átakanlegt viðtal við yfirlækni á réttargeðdeild á dögunum. Hann var að tala um stöðu mála þegar verið væri að koma einstaklingum fyrir þar inni, t.d. sem hlotið hafa framheilaskaða, hversu flókið það væri að blanda saman mjög ólíkum tegundum geðrænna áskorana, að annars staðar í kerfinu þegar um er að ræða sjúklinga væri því ekki fyrir að fara. Það mætti halda að það væru mögulega einhvers konar undirliggjandi fordómar gagnvart þessum sjúkdómi eða það væri lítið tillit tekið til þess hvers háttar geðrænar áskoranir viðkomandi er að glíma við þegar verið er að finna honum pláss. Þannig að ég spyr hv. þingmann hvort hún telji nauðsyn þess að fjölga hér úrræðum fyrir þennan sjúklingahóp.