152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:05]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Vissulega tel ég mjög mikilvægt að fjölga úrræðum. Þetta er sá hópur samfélagsins sem oftast gleymist. Hann verður svo oft út undan. Ég hef séð það í starfi mínu fyrir félagasamtökin Geðhjálp áður en ég settist á þing. Og ég hef séð það í starfi mínu hér á þingi, að ekki bara þegar kemur að lagasetningu, heldur líka þegar kemur að úrræðum, þegar kemur að fyrirhyggju gagnvart þörfum fólks, þegar kemur að virðingu fyrir réttindum fólks, þá er fólk með geðrænar áskoranir alltaf utangátta. Við sjáum það í kolsvartri skýrslu umboðsmanns Alþingis um réttarstöðu fólks á réttargeðdeild og við sjáum það úti um allt kerfið. Ég hef mikið talað um lögræðislögin og hvað þau eru mikil ólög og mismuna fólki með geðrænar áskoranir og ég hef verið að vinna að því að reyna að breyta þeim. Það var varla þekkt þegar ég settist á þing þannig að ég get algerlega tekið undir með hv. þingmanni að það þarf að fjölga úrræðum og þá þarf að fara að taka þennan hóp alvarlega og sýna honum virðingu. Þetta er bara fólk alveg eins og við.