152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:08]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Jú, mér skilst að á flestum stöðum þar sem kosið er að hausti séu fjárlög samþykkt að vori. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir, það er auðvitað vanvirðing við almenning í landinu að neyða þingið í að skila af sér vondri vinnu vegna þess að með svona stuttum tíma til að afgreiða fjárlög getur vinnan aldrei verið fullnægjandi, bara getur það ekki. Þetta er einfaldlega ekki nógu langur tími til þess að vinna fjárlög vel. Það þekki ég eftir að hafa upplifað það tvisvar sinnum og hafa svo upplifað tvisvar sinnum fjárlög í venjulegu árferði. Það er allt öðruvísi að hafa nægan tíma til að vinna þetta risavaxna skjal sem skiptir einmitt máli fyrir allan almenning í landinu. Það er líka skýlaus réttur þeirra kjósenda sem kusu okkur sem erum í stjórnarandstöðu til þings að við fáum ráðrúm til þess að standa vörð um hagsmuni kjósenda okkar. (Forseti hringir.) Það er líka þjóðinni allri til heilla að stjórnarandstaðan hafi einhverja alvöruaðkomu að fjárlögum, enda er það vanvirðing við fjárveitingavald Alþingis að láta svona.