152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að fá að taka undir, og ég held að það sé ekki hægt að undirstrika það nógu oft í þessari umræðu að sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að halda kosningar að hausti þrátt fyrir ekkert kallaði á það, engin pólitísk óvissa og engar aðstæður í samfélaginu kölluðu á haustkosningar, er á kostnað almennings í landinu. Það þarf að vera alveg skýrt og það þarf að komast til skila.

Ég hef verið dálítið hugsi yfir orðalagi hérna um að við séum að afgreiða fjárlög, við séum að stimpla nánast og umræðunni þurfi að flýta. Umræðan er ekki til trafala og við aðstæður eins og núna eru eftir heimsfaraldur og efnahagslegar afleiðingar þess þá er hún sjaldan brýnni þannig að ég er orðlaus þegar ég er að átta mig á afleiðingunum þegar þær birtast manni skýrar. Fjármálaráðherra sjálfur stendur hér og talar um að hann sé í reynd bara búinn að skila drögum að fjárlagafrumvarpi því nú koma fram breytingartillögur. Hvaða nemandi í skóla kæmist upp með að skila drögum að ritgerð?