152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:15]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skýr svör. Mig langar líka að benda á að þarna er verið að selja innviði til fjárfesta sem enginn veit í raun hverjir eru. Það er ekki ljóst hvert eignarhaldið er að fara. Ég tel að þingið þurfi að grípa til sérstakra umræðna um þetta og hef reyndar þegar lagt fram beiðni um það. Mig langar bara að spyrja hv. þingmann hvort hún og hennar flokkur muni ekki örugglega styðja það.