fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Jú, auðvitað munum við taka þátt í og styðja heils hugar sérstakar umræður um þessa sölu og um grunninnviði samfélagsins og hvernig við viljum haga eignarhaldi á þeim. Ég held að það sé mjög mikilvægt að eiga þá umræðu og ég vil hrósa hv. þingmanni fyrir að hafa óskað eftir slíkum umræðum. Ég held að það væri mjög gott að eiga lýðræðislega umræðu um það hvernig við viljum hafa þetta.
Nú hefur forsætisráðherra boðað einhvers konar lagasetningu, við höfum ekki fengið meiri deili á því en það, en mér þykir auðvitað heldur seint í rassinn gripið, þegar salan hefur átt sér stað, að fara í einhvers konar lagasetningu til að bregðast við en sjáum hvað setur. Ég hef svo sem ekki heyrt, ekki frekar en venjulega, hvað ríkisstjórnin ætlar sér í raun og veru að gera, ekki meira en bara það sem kemur fram á blaðamannafundum, enda hefur þessi ríkisstjórn aldrei verið mikið fyrir samráð við stjórnarandstöðuna. En við sjáum hvað setur og við sjáum hvað kemur út úr þessu.