fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sagði í ræðu sinni að ef fjárlögin gengju ekki eftir, ef bjartsýni ríkisstjórnarinnar um aukið fé í ríkiskassann standist ekki þá yrði að skera niður í opinberum fyrirtækjum. En hefur hún ekki áhyggjur af því líka að ríkisstjórnin grípi til þess sem hún hefur gert undanfarin fjögur ár, þ.e. að finna breiðu bökin, það verði stefnan hjá henni og þessi breiðu bök verði þeir sem búa við verstu kjörin, með búsetuskerðingar, öryrkjar, eldra fólk og láglaunafólk? Það verði þar af leiðandi enn og einu sinni skorið niður hjá þessum aðilum og þeir látnir herða sultarólarnar. Er hún ekki sammála mér um að það eigi að hafa alvarlegar áhyggjur af því að þessir hópar sitji ekki bara eftir núna í fjárlagafrumvarpinu heldur eigi enn erfiðari daga næstu fjögur árin en nú er?