152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:19]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, það er nákvæmlega það sem ég hef áhyggjur af þegar ég les þessa tilvitnun úr fjárlagafrumvarpinu á bls. 90, að ef það gangi ekki vel þá verði ekki hægt að tryggja öfluga opinbera þjónustu. Undir opinbera þjónustu fellur allur pakkinn, allt sem ríkið á að gera til þess að reka samfélagið, t.d. styðja við öryrkja og eldra fólk o.s.frv. Mér finnst liggja í augum uppi að ef við fáum ekki blússandi hagvöxt næstu árin þá verði það notað sem réttlæting til að skera niður einmitt þar sem verst er að skera niður, hjá þeim sem mega síst við því. Við sáum þetta auðvitað líka í því hvernig þessi ríkisstjórn hagaði sér í Covid-kreppunni, hún lagði enga áherslu á þá sem höllustum fæti stóðu. Hún gerði lítið sem ekkert til að koma til móts við þá sem urðu verst úti í þeirri kreppu, gagnvart atvinnulausum eins og ég fór rækilega yfir í þessari ræðu líka. Þannig að sporin hræða auðvitað og mér finnst alveg augljóst hvað gerist ef við sjáum ekki blússandi hagvöxt fram undan.