fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég er innilega sammála henni og við megum ekki gleyma því að í síðustu fjárlögum og á síðasta þingi var einn hópur sem sat gjörsamlega eftir og fékk ekki krónu vegna Covid, ekki eina krónu. Það voru eldri borgarar, eldra fólkið okkar. Það fékk enga uppbót vegna Covid. Allir aðrir fengu eitthvað. Þó að það væri lítið til þeirra sem mest þurftu þá fengu allir eitthvað af þeim sem þurftu. Það virðist því miður vera stefnan í þessu fjárlagafrumvarpi. Það sem ég hef áhyggjur af er hversu glöð og ánægð ríkisstjórnin er, sem kom hérna fram og sagðist ætla að hækka um 1% hjá ellilífeyrisþegum umfram verðbólgu. Er hægt að hæla sér af 1% sem skilar engu? Er það það sem koma skal, að ríkisstjórnin muni sjá til þess að þessir einstaklingar fái ekki neitt?