152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:23]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Frú forseti. Ráðherrar og stjórnarliðar segja að aldrei hafi verið settir eins miklir peningar í heilbrigðiskerfið og núna. Þau skilja bara ekkert í fólki að vera að kvarta undan skorti á þjónustu og löngum biðtíma en þjónustan er alls ekki alls staðar góð. Fólk sem þarf á henni að halda finnur fyrir því sjálft á eigin skinni, sama hvað ráðherrarnir segja. Heilbrigðisstarfsfólk segir að margir í þeirra röðum séu að bugast undan álagi en fjármálaráðherrann segir þeim bara að hlaupa hraðar. Ráðherrann veit ekkert vitlausara en að fjölga opinberu starfsfólki, þar með heilbrigðisstarfsfólki. Skilningsleysi á starfsaðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og þörfum sjúklinga ásamt misræmi milli landsvæða virðist vera algjört. Markmiðin sem eru að efla mönnun í heilbrigðisþjónustu, auka aðgengi að réttri þjónustu á réttum stað og stytta biðtíma eru öll góð og nauðsynleg en vandinn er að það skortir fjármagn þannig að þeim verði náð. Bæði hv. velferðarnefnd og fjárlaganefnd verði að fara vandlega yfir stöðu heilbrigðiskerfisins, hvernig eigi að bregðast við þegar fjárveitingar til Landspítalans eru með þeim hætti að hallarekstur er fyrirsjáanlegur og ef ekki koma til aukafjárveitingar verður þjónusta við sjúklinga skert frá því sem nú er ef ekkert verður að gert, þjónusta sem einmitt þarf að bæta en ekki skerða. Vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins hafa biðlistar eftir nauðsynlegum aðgerðum lengst en biðlistarnir voru langir fyrir. Biðtími eftir geðheilbrigðisþjónustu hefur einnig lengst bæði hjá börnum og fullorðnum. Flestir bíða eftir skurðaðgerðum vegna liðskipta á mjöðm og hnjám en einnig eru biðlistar langir eftir aðgerðum á augasteini og brennsluaðgerð á hjarta. Lífsgæði fólksins sem bíður eftir aðgerðum daprast á biðtímanum og álag á það og aðstandendur getur skapað mikla erfiðleika, bæði líkamlega og andlega. Síðast þegar ég gáði biðu tæplega 4.000 einstaklingar eftir þessum skurðaðgerðum og flestir hafa beðið lengi. Rúmlega 1.000 einstaklingar bíða eftir geðheilbrigðisþjónustu hjá Landspítalanum og vel á annað hundrað börn bíða eftir þjónustu á BUGL. Allir hljóta að sjá að við þetta ástand verður ekki unað.

Landsbyggðirnar eru einnig í vanda. Brýnt er að bregðast við vanda heilbrigðisstofnana á vaxtarsvæðunum. Fjármagn til heilbrigðisstofnana hefur ekki fylgt í kjölfar fjölgunar. Þar skera Suðurnesin og Árborg og nágrenni sig úr. Það hefur orðið til þess að íbúar þessara svæða hafa liðið fyrir ástandið. Að bæta úr þessari stöðu þolir enga bið. Við þurfum að sjá breytingar á fjárlagafrumvarpinu á milli umræðna hvað þetta varðar.

Það er grátlegt að einu svör ráðherra við þessu alvarlega ástandi hafi verið að aldrei hafi verið sett jafn mikið fé til heilbrigðisþjónustunnar og nú en það blasir við að nær öll viðbótin hefur farið í byggingu nýs Landspítala og aðrar fjárfestingar, launauppbætur og verðlagsbætur. Heilbrigðisþjónustan sjálf við sjúklinga er svelt með fjárskorti og manneklu. Sumir flokkar segja að lausnin sé einkarekstur. Það megi setja aukna fjármuni til heilbrigðiskerfisins úr ríkissjóði, bara ef þeir fara í einkarekstur. Einkarekstur getur ekki komið í staðinn fyrir trausta opinbera heilbrigðisþjónustu sem er öllum aðgengileg. Það má aldrei vera minnsti vafi á því hvort hagsmunir sjúklinga eða rekstraraðila heilbrigðisþjónustu vegi þyngra.

Hæstv. heilbrigðisráðherra á síðasta kjörtímabili svaraði fyrirspurn minni fyrr á þessu ári um biðlista eftir greiningu og þjónustu hjá Þroska- og hegðunarstöð. Í svarinu kom fram að 1. júní í ár hafi 664 börn verið á biðlista, 360 höfðu bæst á biðlistann í ár en hin 304 hefðu verið á biðlistanum líka í fyrra. Augljóslega má ekki við þetta ástand una og það er ekki síst sláandi þar sem Þroska- og hegðunarstöð heyrir undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þjónustan fellur því undir almennar lagalegar skilgreiningar um þjónustu heilsugæslunnar. Þekkt er að samskiptavandi þeirra sem eru með ADHD og skert sjálfsmynd kemur fram strax við sjö til átta ára aldur. Börnin eru kvíðin og líða fyrir kvíða sem er undirrót reiðikasta og mótþróa sem börnunum er oftar en ekki refsað fyrir og vítahringurinn myndast. Einstaklingur með ADHD sem fær greiningu snemma og fær meðferð strax hefur miklu betri möguleika á að standa sig í lífinu og börn sem fá rétta meðferð með lyfjum eru í minni hættu á að ánetjast vímuefnum en þau sem ganga með ógreint og ómeðhöndlað ADHD. Þetta staðfesta rannsóknir. Með greiningu fá aðstandendur að vita hvað hægt sé að gera til að mæta vanda barnsins.

Það er skortur á geðlæknum hér á landi. Stjórnvöld þurfa að leggjast á árarnar og finna leiðir til að fjölga geðlæknum, hvetja til menntunar og gera það aðlaðandi fyrir íslenska geðlækna sem starfa erlendis að koma heim. Sálfræðingum þarf líka að fjölga og koma þjónustu þeirra undir Sjúkratryggingar Íslands og þjónusta þeirra þarf að vera gjaldfrjáls fyrir börn. Við í Samfylkingunni viljum einnig að ríki og sveitarfélögin fari í skipulagt samstarf um forgreiningu þannig að hægt sé að vinna með börn á viðeigandi hátt þrátt fyrir að formleg greining liggi ekki fyrir. Um 30% þeirra barna sem eru á biðlista eru af landsbyggðinni. Það verður að fjölga markvisst möguleikum á fjarlækningum og samtölum í gegnum fjarfundarbúnað fyrir landsbyggðirnar. Slík notkun á tækni hefur sýnt sig að virkar ágætlega. Svo að ná megi biðlistum niður og jafna aðgengi fólks að úrræðum og að þar ráði ekki för efnahagur fólksins sem þarf á úrræðinu að halda ætti að gera þjónustusamninga við einkaaðila sem taka að sér greiningarnar. Kostnaður í dag er um 130.000 kr. ef leitað er til einkaaðila í þessum efnum. Ef sálfræðiþjónusta fer undir sjúkratryggingar verður þetta hins vegar varla vandamál.

Þrátt fyrir að ADHD sé viðurkennd röskun eru enn miklir fordómar vegna þekkingarleysis eða afneitunar á vandanum. Þekking kennara er almennt of lítil og oft eru það foreldrar sem fræða kennara um vanda barnsins og hvað virki best. Ef hugmyndin um skóla án aðgreiningar á að virka verður að bæta menntun kennara í þessum efnum. Það mætti t.d. gera með því að auka áherslu á fötlunarfræði í kennaranámi. Það þarf einnig að auka opinberan stuðning við grasrótina, við ADHD-samtökin svo hægt sé að halda úti starfi þeirra um allt land. Snemmtæk íhlutun skiptir lykilmáli og að börn fái viðeigandi stuðning. Það ætti að gera ADHD-samtökunum kleift að fara hringferð um landið með kennslu og fræðslu fyrir alla kennara og starfsfólk skóla. Það er ekki nóg bara að kennarar þekki til, stuðningsfulltrúar og aðrir starfsmenn skóla þurfa á þekkingu að halda. Sumir vilja meina að greining og úrræði í kjölfarið fyrir einstaklinga með ADHD sé of dýrt fyrir ríkið að leggja fram. Fróðlegt væri að sjá útreikninga á því hvað það kosti samfélagið til lengri tíma að börn komist ekki að hjá fagfólki, þjáist vegna þess og fái ekki viðeigandi úrræði.

Í svörum frá heilbrigðisráðherra við fyrirspurnum mínum kom fram að ADHD-teymi Landspítalans hafi það hlutverk að sinna greiningu og meðferð ADHD fyrir fólk 18 ára og eldra. Á biðlista eftir greiningu þar eru 717 einstaklingar og á biðlista eftir meðferð hjá lækni 66 einstaklingar. Það er mikilvægt að þeir sem sinna eldra fólki þekki ADHD og geri ráð fyrir að þeir sem eldri eru geti átt við þessa röskun að stríða eins og þeir sem eru yngri. Kvíðaeinkenni og þunglyndi geta birst á svipaðan hátt og hjá þeim yngri og það er þörf á frekari rannsóknum á þessu sviði til að segja m.a. til um hvaða meðferðarleiðir gagnast eldra fólki best. Allir, á hvaða aldri sem er, eiga rétt á að fá sem bestar og réttastar upplýsingar um heilsufar sitt. Að öðrum kosti hefur fólk ekki forsendur til að haga lífi sínu á sem heilbrigðastan hátt.

Frú forseti. Bilið milli lífeyris og lægstu launa breikkar enn. Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ítrekað lagt fram frumvörp um réttláta hækkun lífeyris almannatrygginga sem ekki hafa hlotið náð fyrir augum stjórnarflokkanna. Hætta á fátækt og fjárhagsþrengingum er mest meðal þeirra sem þurfa að treysta á örorkulífeyri og flókin skerðingarákvæði kerfisins ýta undir þá hættu. Hjálparstofnanir hafa orðið varar við mikla aukningu matarúthlutana. Flestir sem leita til þeirra eru öryrkjar, langveikar, einstæðar mæður og atvinnulaust fólk. Ríkisstjórnin hefur lagt til að frítekjumark atvinnutekna eldra fólks verði tvöfaldað, fari úr 100.000 kr. á mánuði í 200.000 kr. Það er ágætt en varla forgangsmál hjá þeim sem geta ekki unnið og eiga ekki aðra möguleika en að lifa á ellilífeyri sem í dag er um 266.000 kr. á mánuði. Það eru aðeins um 13% eldra fólks sem stunda launaða vinnu og enn færri sem eru með laun yfir 100.000 kr. á mánuði. En aðgerðin er ódýr fyrir ríkissjóð og kynnt sem stórkostleg kjarabót fyrir eldra fólk. Og það er rétt, kjarabótin er nokkuð góð fyrir þá sem geta nýtt sér hana en hún skilar sér til fárra og ekki til þeirra sem búa við verstu kjörin.

Frítekjumark vegna launatekna öryrkja hefur haldist óbreytt frá 1. júlí árið 2009 og ætti með réttu að vera tvöfalt hærra í dag, hefði það fylgt launavísitölu. En ríkisstjórnin leggur ekki til hækkun á frítekjumarki fyrir öryrkja. Þetta lága frítekjumark fyrir atvinnutekjur öryrkja dregur úr virkni þeirra sem annars gætu unnið meira á góðum dögum. Þarna er mikill og verðmætur starfskraftur ónýttur. Hæstv. forsætisráðherra og hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra lögðu bæði áherslu á að kjör öryrkja yrðu bætt á kjörtímabilinu og gallar kerfisins heyrðu þá sögunni til. Þótt slík loforð hafi oft heyrst áður bind ég samt vonir við að almennileg skref verið tekin í þessum efnum sem allra fyrst. Þau eru sláandi, mörg samtölin sem ég hef átt við öryrkja sem biðja um að fá ekki hækkun í krónutölum á einum stað í kerfinu því hún kalli á lækkun á öðrum stað og staðan verður þá óbreytt eða verri. Þau eru föst í þessari gildru. Ójöfnuður vex vegna þess að ellilífeyrir og örorkulífeyrir hækka ekki í takt við lægstu laun. Þannig er fjölmennum hópum haldið í fátæktargildru. Það verður að minnka kjaragliðnun undangenginna ára og hækka elli- og örorkulífeyri. Fólk sem ekki hefur tækifæri til að afla sér atvinnutekna hefur sumt engin lífeyrisréttindi, engar fjármagnstekjur og treystir algerlega á almannatryggingakerfið.

Í fjárlagafrumvarpinu er lagt til að örorkulífeyrir hækki um 1 prósentustig umfram almenna árlega hækkun til lífeyrisgreiðslna. Sú hækkun verður til þess að lífeyrir, hvort sem er ellilífeyrir eða örorku- og endurhæfingarlífeyrir verður um 280.000 kr. frá 1. janúar nk. Á sama tíma fer lágmarkstekjutryggingin samkvæmt lífskjarasamningunum í 368.000 kr. á mánuði. Fólkið sem treystir á greiðslur Tryggingastofnunar til að lifa fær allt of lágar greiðslur og hækkanirnar hafa ekki haldið í við lífskjarasamninga. Kjaragliðnunin miðað við lágmarkstekjutryggingu er því umtalsverð. Munurinn nú á lágmarkstekjutryggingu og ellilífeyri er um 85.000 kr. á mánuði en fer í 88.000 kr. 1. janúar með aðgerðum sem ríkisstjórnin boðar í fjárlagafrumvarpinu.

Við í Samfylkingunni leggjum til að elli- og örorkulífeyrir hækki til samræmis við hækkun lægstu launa. Við höfum einnig lagt til að frítekjumark vegna greiðslna frá lífeyrissjóðum fari í skrefum upp í 100.000 kr. á mánuði úr 25.000 kr., frítekjumark vegna atvinnutekna bæði öryrkja og ellilífeyrisþega verði hækkað að lágmarkstekjutryggingunni hverju sinni. Samkvæmt útreikningum í skýrslu Eflingar um málið sem kom út fyrr á þessu ári er kostnaðurinn við þessar breytingar um 30 milljarðar kr., en í því dæmi má gera ráð fyrir að 25% renni aftur til ríkissjóðs í formi skatta. Með hækkandi lífaldri Íslendinga er mikilvægt að skýra strax markmið um að eldra fólk geti lifað með reisn, bæði með betri heilbrigðisþjónustu og hærri lífeyri. Hópurinn sem treystir á þessar greiðslur er stór og óásættanlegt fyrir ríkt samfélag að fólki sé ætlað að búa við fátækt.

Frú forseti. Í umræðum um fjárlagaáætlun í vor fyrir árin 2022–2026 ræddi ég um skortinn á fjölskyldustuðningi hér á landi og samanburð við hin norrænu ríkin sem ég ítreka hér. Stefna um barnvænt samfélag, og leiðir til að uppfylla barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna líkt og lögbundið er, þarf að vera að fullu fjármögnuð. Alþingi Íslendinga þarf að sjá til þess að svo sé. Eitt af því sem verður að fjármagna að fullu er að vinna á biðlistum eftir þjónustu við börn, hvort sem er vegna greiningar eða úrræða. Varnir gegn hvers kyns ofbeldi og vanrækslu barna verður að styrkja og stjórnvöld mega aldrei setja börn í hættulegar aðstæður hvort sem er innan lands eða utan. Því fer fjarri að barnafjölskyldur á Íslandi fái jafn mikinn og góðan stuðning og tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Ungt fólk með meðallaun fær engar barnabætur. Barnabætur eru ekki fyrir þeirra börn þó að fólkið velti hverri krónu og aldrei sé afgangur um mánaðamót, sama hve margir yfirvinnutímar séu unnir. Um leið og foreldrar vinna meira til að geta veitt börnum sínum þokkalegt húsnæði, klæði og tómstundir, fá börnin lítinn tíma með foreldrum sínum og streitan við að skutla og sækja inn á milli vinnutarna tekur sinn toll. Samkvæmt stefnu ríkisstjórnarinnar fá aðeins þær fjölskyldur sem eru með rétt um lágmarkslaun óskertar barnabætur. Þannig var það á síðasta kjörtímabili og stefnan er um það áfram. Eftir það hefjast skerðingarnar. Áður en mánaðarlaunin hafa náð meðaltekjum hjá hjónum og sambúðarfólki koma engar barnabætur og hafa minnkað verulega að því marki vegna grimmra tekjuskerðinga sem eru afleiðing af stefnu núverandi ríkisstjórnar. Jafnvel þótt viðmiðunarfjárhæðirnar séu eitthvað hreyfðar til í fjárlagafrumvarpinu er ekki lögð ein króna í heildarupphæð til barnabótakerfisins. Áfram er stefnan sú að barnabætur séu styrkur til fátækra fjölskyldna en ekki til allra fjölskyldna til að jafna stöðu þeirra sem eru með börn á framfæri við hina.

Barnabætur eru greiddar út fjórum sinnum á ári. Fyrsta breytingin sem augljóslega þarf að gera er að greiða barnabætur út mánaðarlega til að lágmarka kostnað, m.a. vegna yfirdráttar á bankareikningum, og tryggja þar með að greiðslurnar verði eðlilegur partur af mánaðarlegum rekstri heimilisins. Ef Ísland á að vera barnvænt samfélag verður að styðja við fleiri barnafjölskyldur. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru barnabætur ekki tekjutengdar en í Danmörku hefjast skerðingar við háar tekjur.

Tekjutengingin er í hinum norrænu ríkjunum í gegnum tekjuskattskerfið. Hugsunin er sú að með barnabótum séu kjör þeirra sem eru með börn á framfæri jöfnuð við kjör þeirra sem eru ekki með börn á framfæri en tekjuhæstu einstaklingarnir greiða hins vegar hærri tekjuskatta en hinir. Við í Samfylkingunni, Jafnaðarmannaflokki Íslands, viljum taka örugg skref að barnvænu samfélagi og munum áfram leggja til breytingar á barnabótakerfinu að norrænni fyrirmynd. Kostnaðurinn við hærri barnabætur til fleiri fjölskyldna mun skila sér margfalt til baka með betri líðan barna og aukinni hagsæld.

Frú forseti. Tíminn líður svo hratt hér í þessum sal og þessum ræðustóli. Ég þarf að fara að haska mér. Lög um almennar íbúðir voru samþykkt sumarið 2016. Íbúðakerfið er tilraun til að endurreisa vísi að félagslega húsnæðiskerfinu sem var aflagt undir lok síðustu aldar með þeim afleiðingum að félagslegum íbúðum fækkaði um helming milli áranna 1998 og 2017. Í því sambandi er vert að minnast lengstu ræðu sem haldin hefur verið á Alþingi. Hana flutti Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, til að mótmæla niðurlagningu félagslega íbúðakerfisins 14. maí árið 1998. Markmið laganna um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir ákveðnum tekju- og eignamörkum með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi leiguhúsnæði. Þannig sé stuðlað að því að húsnæðiskostnaður sé í samræmi við greiðslugetu þeirra sem leigja húsnæði og fari að jafnaði ekki yfir 25% af tekjum þeirra.

Fjármálaáætlun sem samþykkt var í sumar af núverandi stjórnarflokkum gerir ráð fyrir að um 3.200 íbúðir verði byggðar á árunum 2016–2022. Stór hluti þessarar uppbyggingar er á vegum Bjargs íbúafélags, sem var stofnað af ASÍ og BSRB fyrir nokkrum árum síðan, og Bríetar, leigufélags Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, sem eru rekin án hagnaðarmarkmiða. Íbúðakerfið er fjármagnað þannig að ríkið veitir stofnframlag sem nemur 18% af stofnvirði almennra íbúða. Stofnvirði er kostnaðarverð íbúðarinnar, sama hvort það er við byggingu hennar eða vegna kaupa á henni. Reykjavík hefur byggt langflestar íbúðir í almenna íbúðakerfinu fyrir lágtekjufólk, fyrir námsmenn, öryrkja og fatlaða og aðra sem eru í vandræðum með að taka þátt í almennum íbúðamarkaði. Um 73% umfangsins eru í Reykjavík. Það þarf að styrkja almenna íbúðakerfið verulega og mun meira en ríkisstjórnin leggur til í fjárlagafrumvarpinu og halda áfram að byggja óhagnaðardrifnar leiguíbúðir um allt land.

Meginmarkmið íbúðakerfisins eru aukið framboð leiguhúsnæðis og að húsnæðiskostnaður fólks verði í samræmi við greiðslugetu. Húsnæðisbætur eru almennur stuðningur við leigjendur sem áður var veittur í formi húsaleigubóta. Bæturnar eru mánaðarlegar greiðslur sem miðast við fjölda heimilismanna að teknu tilliti til tekna, eigna og greiðsluþátttöku í húsnæðiskostnaði. Nú fá þau heimili húsnæðisbætur frá ríkinu þar sem fjöldi heimilisfólks er samtals 31.000 manns. Sérstakur húsnæðisstuðningur við leigjendur sem heyra undir Félagsþjónustu sveitarfélaga er greiddur af sveitarfélögunum. Sveitarfélög hafa farið fram á breytingar á þessu og að kerfin verði sameinuð.

Vaxtabætur eru tekju- og eignatengdar bætur til þeirra sem greiða vaxtagjöld af lánum vegna eigin húsnæðis. Viðmiðunarupphæðir vegna vaxtabóta, sem ekki hafa breyst í áraraðir, leiða til þess nú að þær ganga að mestu til þeirra sem ekki þurfa á þeim að halda. Leigubremsu þannig að ekki sé hægt að hækka húsaleigu hvenær sem er um hvaða upphæð sem er, hækkun húsnæðisbóta og enn fleiri almennar íbúðir þarf til svo að koma megi til móts við þá sem þurfa og vilja leigja sér húsnæði í stað þess að kaupa.

Frú forseti. Jafnaðarmenn í Norðurlandaráði í samstarfi við norræn verkalýðsfélög hafa beint sjónum að og staðið fyrir opnum fundum um félagsleg undirboð sem kölluð eru svo á vinnumarkaði. Því miður virðist sem ljótum málum um nútímaþrælahald sé að fjölga töluvert hér á landi. Fyrst tengdist þetta uppgangi í þjóðfélaginu, ekki síst í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, en núna í atvinnuleysi eftir heimsfaraldur eru einnig dæmi um að brotið sé á launamönnum sem eru í viðkvæmri stöðu. Ódýra vinnuaflinu er ætlað að auka gróða fyrirtækja, koma þeim framar í röðina í samkeppninni. Þrælar 21. aldarinnar vinna myrkranna á milli fyrir vasapening. Mér finnst reyndar orðið félagsleg undirboð vera of snyrtilegt orð fyrir þann glæp sem á sér stað þegar fólk er rænt launum sínum og réttindum. Fórnarlömbin eru hrædd við að tjá sig og eru í raun þau einu sem taka áhættu með glæpnum. Fyrirtækin geta illu heilli bara borgað og haldið svo áfram. Í versta falli skipta þau um kennitölu. Algengast er þó að atvinnurekendur komi sér undan því að virða kjarasamninga, greiða ekki veikindadaga, fólkið fær ekki frídaga eða lögbundinn hvíldartíma eins og því ber, hringlað er með vaktaplan þannig að vaktaálag og yfirvinna er ekki greidd, fólk er jafnvel sagt í sjálfboðavinnu.

Sem betur fer er algengast að ekki sé brotið á launamönnum en tilfellin um hitt eru allt of mörg og þau beinast að viðkvæmum hópum sem eru ungt fólk og innflytjendur. Stjórnvöld geta ekki setið þögul hjá og láti' verkalýðsfélög ein um að benda á skattsvik og bera ábyrgð á að uppræta það sem kalla má með réttu þrælahald hér á landi. Við í Samfylkingunni munum ekki þegja yfir slíku eða samþykkja með fjársvelti eftirlitsstofnana. Eins og hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra talaði hér undir stefnuræðu hæstv. forsætisráðherra gefur það von um að tekið verði fastar á þessum efnum en gert var á síðasta kjörtímabili. Reyndar verð ég að segja að mér fannst hæstv. félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra tala eins og ráðherra í einhverri allt annarri ríkisstjórn en hann er í en við skulum vona að það leiði til góðra verka.

Frú forseti. Það á að halda áfram með sölu Íslandsbanka án þess að huga að endurskipulagningu bankakerfisins til hagsbóta fyrir viðskiptavini bankanna. Hugmyndin er sú að selja bankahluti til að fjármagna innviði en ekki eru færð rök fyrir því hvers vegna það er hagstæðara en að nýta arðinn sem bankinn gefur árlega til að fjármagna innviðina. Bankarnir eru sannarlega í góðum málum eftir heimsfaraldurinn, skila miklum hagnaði enda hefur rekstrarumhverfi þeirra verið breytt þeim í hag, m.a. með lækkun bankaskattsins. Mikið notuð ástæða fyrir sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka er sú að samkeppni eflist á einhvern hátt við það að selja bankann. Hins vegar er alveg skýrt að það að hluti eignarhalds á öðrum bankanum í eigu ríkisins fari til einkaaðila breytir engu um samkeppnina á milli stóru bankanna þriggja. Það að hafa þrjá stóra banka sem allir eru kerfislega mikilvægir er takmarkandi fyrir samkeppni á markaði og getur stuðlað að fákeppni óháð því hvort einn eða tveir bankar eru í eigu einkaaðila. Ef vilji er til að skapa rými fyrir fjölbreytni og meiri samkeppni milli markaðsaðila þarf að huga að heildarskipulagi kerfisins og gera verulegar breytingar.

Í umsögn Samkeppniseftirlitsins vegna áforma um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka er einmitt rætt um þetta. Samkeppniseftirlitið bendir á að við undirbúning ákvörðunar um svo veigamikla sölu á eignarhlut ríkisins sé mikilvægt að samkeppnisleg áhrif sölunnar séu metin í þaula og að virk samkeppni ásamt með góðu regluverki geti stutt við fjármálastöðugleika. Það var ekki fjallað um samkeppnismál í greinargerð hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um söluna á hlutnum sem fram fór í sumar. Samkeppniseftirlitið benti á, áður en samningar um söluna voru innsiglaðir, að íslenskur fjármálamarkaður beri sterk fákeppniseinkenni, lántakendur hafi úr fáum kostum að velja og bankarnir þrír í lykilstöðu að því er varðar þróun atvinnustarfsemi í landinu. Bankar eru ekki eins og hver önnur fyrirtæki, þeir hafa áhrif úti um allt samfélagið og til að móta framtíðarskipulag bankakerfisins þarf almenna umræðu. Sú umræða fór ekki fram í aðdraganda kosninga og svo virðist sem stjórnarflokkarnir hafi afgreitt það sem svo að allir séu sáttir við að einkavæða bankana að nýju í óbreyttu kerfi. Þó sýndu kannanir fyrir söluna í sumar að þá töldu innan við 20% landsmanna tímabært að ríkið seldi bankana til einkaaðila og yfir 60% töldu það ótímabært.

Við í Samfylkingunni höfum talað fyrir því að við ættum að nýta þá stöðu sem uppi er með stóran eignarhlut í bönkunum og ákveða hvernig bankakerfi við viljum sjá til framtíðar með góðri þjónustu við fólk og fyrirtæki, með fjölbreytni og fleiri kostum ásamt samkeppni, öflugu eftirliti og neytendavernd og með öruggri ódýrri innlendri greiðslumiðlun. Greiðslumiðlunarkerfi eru grunninnviðir í hverju landi. Svara þarf að hve miklu leyti eigi að heimila einkaaðilum eða erlendum stórfyrirtækjum að sjá um þessa grunninnviði samfélagsins og nýta þá til hagnaðar í eigin þágu frekar en almannahags. Tækniframfarir eru á fleygiferð og ágóðinn af þeim þarf að falla almenningi í skaut en ekki bara eigendum bankanna. Grænar áskoranir blasa við og grænar fjárfestingar verða samfélaginu enn mikilvægari. Við viljum aðskilja fjárfestingarbankastarfsemi frá viðskiptabankastarfsemi og að fjárfestingarbankastarfsemi verði ekki fjármögnuð með sparnaði almennings. Áhætta í fjárfestingarbankastarfsemi verði áhyggjuefni eigenda fjárfestingarbankans en ekki ríkisins. Þar liggur mikilvægur lærdómur bankahrunsins. Viðskiptabankastarfsemi — eins konar samfélagsbanki eða þjóðarbanki — verði hins vegar fjármögnuð með innlánum með Seðlabankann sem bakhjarl. Slíkri uppskiptingu fylgir aukin fjölbreytni á fjármálamarkaði og samkeppni sem skortir nú, en fyrst og fremst viljum við að það fari fram umræða í samfélaginu um framtíð bankakerfisins og vilji almennings í þeim efnum verði dreginn fram.

Forseti. Á síðustu sekúndunum vil ég hvetja hv. fjárlaganefnd til að ganga í endurskoðun á 7. gr. laga um opinber fjármál sem fjallar um fjármálareglur. (Forseti hringir.) Að festa fjármálareglur í lög hefur sýnt sig að er tímaskekkja. Nær væri að festa í lög skyldu ríkisstjórna að setja sér reglur fyrir hvert kjörtímabil fyrir sig en að festa prósentutölur og viðmiðunartölur í lög hefur sýnt sig að er óráð.