152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:53]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir yfirgripsmikla ræðu eins og þingmannsins var von og vísa með sína þekkingu á málefninu. Það er eiginlega tvennt sem mig langar til að ræða við hana í fyrra andsvari og bæði atriðin eiga í sjálfu sér rætur að rekja til hennar fyrri tíma sem hæstv. fjármálaráðherra. Mig langar til að leita í þekkingarbrunn þingmanns og fyrrverandi ráðherra varðandi það vinnulag sem hér er viðhaft. Annars vegar er það ákvörðun ríkisstjórnarinnar að hafa haustkosningar, þrátt fyrir að um heilt kjörtímabil hafi verið að ræða, draga síðan fæturna í heila tvo mánuði, virðist vera, í vinnslu frumvarpsins og leggja það síðan fram svo ófullkomið að fjármálaráðherra segir í sömu andrá og hann leggur það fram að það muni taka miklum breytingum, við séum hérna eiginlega með drög og allir hljóti bara að skilja það. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á þessum vinnubrögðum og þá ekki síst á þeim tíma sem við lifum núna þar sem skiptir máli hvernig við förum með peningana og hvernig við forgangsröðum þjónustunni? Til viðbótar langar mig að heyra álit hv. þingmanns á þessum vinnubrögðum í ljósi þess að nú lítur út fyrir að hið raunverulega fjárlagafrumvarp verði fyrst rætt í fjárlaganefnd þar sem eingöngu sitja 60% þingflokka stjórnarandstöðunnar sem þar með hafa ekki aðgang að þessari vinnu. Spurning mín til hv. þingmanns og fyrrverandi fjármálaráðherra er einfaldlega þessi: Er þetta boðlegt?