152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:55]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst vil ég segja að það er bara allt of langt síðan ég var fjármála- og efnahagsráðherra, það er svo langt síðan að það fer bráðum að telja áratug. Þó get ég sagt að það að vinna fjárlög á svona stuttum tíma í desember er náttúrlega ekki boðlegt. En við getum samt horft til þess að þessi ríkisstjórn var saman á síðasta kjörtímabili og að því leyti ætti þetta ekki að breyta svo miklu vegna þess að þau voru búin að samþykkja í sumar fjármálaáætlun fyrir árin 2022–2026. Þar var pólitíkin þeirra komin fram. Það fjárlagafrumvarp sem við ræðum hér er algerlega í takti við þá fjármálaáætlun. Við hefðum auðvitað getað sagt okkur það og kjósendur hvað þeir fengju í fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 2022 og næstu árin ef þessir stjórnarflokkar færu saman aftur, sem þeir gerðu, eins og þau voru reyndar búin að lofa okkur að gera. En vinnulagið og það að hafa haustkosningar og draga síðan vinnuna svona lengi er auðvitað algjörlega óboðlegt fyrir stjórnarandstöðuna og reyndar held ég að það hljóti að vera óboðlegt fyrir hv. stjórnarþingmenn líka. Þetta ber allt keim af miklu foringjaræði og ráðherraræði. Það er óþolandi fyrir okkur í minni hlutanum en allir þingmenn hljóta að taka undir að það þarf að styrkja stöðu þingsins í þessum málum.