fjárlög 2022.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Tek undir margt sem þar kemur fram og það er auðvitað hárrétt að það er eiginlega enn furðulegra hversu ófullkomið þetta plagg er í ljósi þess, eins og hv. þingmaður kemur inn á, að það var löngu búið að tjalda fyrir þessa vegferð. Mig langar í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann sem þingmann landsbyggðarinnar, sem þingmann Suðurkjördæmis, um þær fregnir sem eru í frumvarpinu um framlög til samgöngumála. Þau eru lækkuð vegna þess að tímabundnu átaki í samgöngumálum er lokið. Það kom svo sem ekkert á óvart. Spurningin er: Kemur það hv. þingmanni á óvart að því var ekki fram haldið? Það er viðurkennt að við erum enn töluvert undir langtímameðaltali með samgönguinnviði og ástandið er eins og það er, ekki síst í Suðurkjördæmi sem að sama skapi ber hitann og þungann af umferð ferðamanna. Mig langar aðeins til að heyra skoðanir hv. þingmanns varðandi þessa stöðu.