fjárlög 2022.
Frú forseti. Innviðaskuldin er enn ógreidd. Þegar allt hrundi hér um árið þá var allt skorið niður sem varðaði ekki bara líf og limi fólks, liggur við, og viðhald á vegum og bygging vega o.s.frv. Við erum ekki búin að greiða þá skuld og það þarf að gefa í þar og það varðar umferðaröryggi. Ég held að allir þeir sem hafa keyrt veginn fyrir austan Hvolsvöll og austur að Höfn, þann mjóa og hættulega veg, viti hvað talað er um í þessum efnum. En það er líka verið að boða einkaframkvæmdir á nauðsynlegum vegabótum eins og Ölfusárbrú og Hornafjarðarfljóti o.s.frv. Kannski er verið að lækka þessar greiðslur og svo eigi bara að rukka í vegaskatta á móti, hver veit?