152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:13]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir gott svar. Við erum sammála um mjög margt í því sem hér hefur komið fram. Einkarekin þjónusta í heilbrigðisgeiranum á ekki að vera matarhola fyrir þá sem samið er við um að veita þjónustuna. Þetta hlýtur alltaf að snúast um fólkið, þjónustuna sem fólkið fær, og auðvitað þarf þetta að vera vel skilgreint og gott eftirlit með.

Mig langar líka til að beina spurningu til hv. þingmanns um það að núna eru 100 milljónir í fjárlagafrumvarpinu eyrnamerktar heilsugæslu á Suðurnesjum, í kjördæmi þingmannsins. Mér skilst að þessi heilsugæsla eigi að vera tilbúin, samkvæmt því sem áform voru uppi um, árið 2024, og í heildina á að veita til þessa rétt um 750 milljónir, að mér skilst. Ég myndi gjarnan vilja spyrja hv. þingmanninn svona úr kjördæminu: Finnst þingmanninum líklegt að þessar tímaáætlanir standist miðað við þær fjárheimildir sem eru settar til verkefnisins í fjárlögum nú?