152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:28]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það má ef til vill lýsa þessu sem langstökki án atrennu en það er verst að þegar menn reyna það, ef það er pollur fyrir framan þá, þá enda þeir í pollinum og ég óttast að ríkisstjórnin lendi í því með þessi fjárlög. En áhrifin verða að engu að síður þau að þetta verða þeim mun meiri kerfisfjárlög. Ég hef nú lýst þessari ríkisstjórn sem kerfisstjórn og hún hefur reynst mjög leiðitöm gagnvart stjórnkerfinu og látið það um að forgangsraða fyrir sig til þess einmitt að geta forðast pólitík, til að geta forðast pólitísk álitaefni. Nú við þessar aðstæður þegar ríkisstjórn leggur fram fjárlagafrumvarp með í rauninni engum fyrirvara þá hefur kerfið þetta allt í hendi sér, enda heyrir maður núna aðeins frá stjórnarliðum að þeir séu byrjaðir að velta því fyrir sér að gera þurfi umtalsverðar breytingar á fjárlagafrumvarpinu í nefndinni, frumvarpinu sem er nýbúið að leggja fram.