152. löggjafarþing — 4. fundur,  3. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[15:31]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er hægt að líta á þetta á tvennan hátt. Annars vegar að það sé jákvætt að þingið hafi þá tækifæri til þess að breyta þessum fjárlögum og ekki er vanþörf á, eða það sem maður óttast náttúrlega að sé raunin, að þessi fjárlög hafi einfaldlega ekkert verið tilbúin og þingið eigi ekkert að hafa mikla aðkomu að því að laga þau. Ráðherrarnir muni einfaldlega skila til fjárlaganefndar, síns meiri hluta þar, hvaða breytingar þeir vilji sjá og ætlast svo til þess að við afgreiðum það á þann hátt. Ef ríkisstjórnin ætlaði að standa við fyrirheitið úr síðasta stjórnarsáttmála um eflingu Alþingis — ég sé að þau endurtóku ekki þann brandara í nýja sáttmálanum — og leyfa þinginu að hafa raunveruleg áhrif á fjárlögin þá væri þetta kannski jákvætt. En því miður munum við líklega horfa upp á það að ríkisstjórnin muni einfaldlega vilja nýta tímann til þess að gera áframhaldandi breytingar fyrir sjálfa sig og fyrir ráðherra stjórnarinnar.